Emmsjé Gauti í bleikum fötum: „Ég fell ekkert rosalega vel inn í þessa gömlu staðalmyndarkarlmennsku“

Emmsjé Gauti er að kynna nýju plöt­una sína, en hún er langt frá því að vera það eina sem brennur á honum. Hann ræðir karl­mennsk­una, kynja­jafn­rétti, ras­isma og með­ferð yfir­valda og sam­fé­lags á mál­efnum flótta­manna; mála­flokk sem stendur honum sér­stak­lega nærri vegna reynslu kon­unnar hans og fjöl­skyldu hennar.

Lífsglaður Emmsjé Gauti gefur út plötuna Bleikt ský Gauti svífur um á Bleiku skýi þessa dagana, en titill nýrrar plötu sem kemur út þann 11. júlí vísar einmitt til þess. Hann kann að meta góðu tímana þar sem hann veit að lífið er upp og niður, fullt af andlegum hæðum og lægðum, sem hann telur mikilvægt að karlmenn geti rætt á opinskáan hátt.

Gauti Þeyr Másson – betur þekktur sem rapp­ar­inn Emmsjé Gauti – mætir í við­talið í bleikum jakka, eign ljós­mynd­ar­ans Sögu Sig. Við ræðum lit­inn og merk­ingu hans í sam­hengi við kynjat­ví­hyggju, for­dóma og eitr­aða karl­mennsku. Hann er öruggur í sínu, elskar lit­inn og ekki vanur að verða fyrir aðkasti. Hálftíma eftir við­talið fær blaða­maður skila­boð frá honum; „Random móment í tengslum við bleika jakk­ann, er á Mathöll Höfða og sirka fimm­tugur verka­maður spurði mig hvort ég væri kona og hló svo að mér“ segir hann og bætir við að það stingi hann ekki per­sónu­lega, en þarna sé þetta týpíska karl­mennsku­dæmi. 

„Týpískur hvítur, mið­stétt­ar­lista­maður, faðir sem býr í Vest­ur­bænum og rekur ham­borg­ara­stað“

Gauti gengur mikið í bleiku þessa dag­ana, sem skírskotun í nýju plöt­una hans, Bleikt ský, sem kemur út 11. júlí. Hann segir nafnið til­komið af ham­ingj­unni; hann svífi um á bleiku skýi, en hann sé flug­hræddur. Und­ir­liggj­andi er ótt­inn um geld­ingu ham­ingj­unnar á list­inni og ímynd­inni. Hann lifði á árum áður fyrir aðdá­end­urna, lífs­stíl­inn, sen­una, djam­mið og stelp­urnar. Síðan þá hefur líf hans umturn­ast og runnið í form hins heil­steypta og reglu­sama föður í venju­legri vísi­tölu­fjöl­skyldu. Spurn­ingar vakna um hvort maður þurfi að þjást fyrir list­ina eða hægt sé að lifa þægi­legu mið­stétt­ar­lífi með fjöl­skyld­unni á dag­inn og lifa rapp­stjörnu­lífi á kvöldin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár