Fjósalykt af Framsóknarflokknum og bjórlykt af Pírötum

Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, varar við því að Íslend­ingar leiði í lög að bragð og lykt geti orðið hluti af vöru­merkjum. Hann sagði bragðið af Vinstri grænum áður hafa verið sætt, en að það væri orðið beiskt í dag.

Jón Þór Ólafsson Þingmenn ræddu um lyktina af stjórnmálaflokkum.

Mið­flokk­ur­inn lyktar eins og hestar, en Píratar anga ekki af skötu. Þetta kom fram í máli Jóns Þórs Ólafs­sonar, þing­manns Pírata, á Alþingi í gær þar sem hann reif­aði hug­myndir um hvernig stjórn­mála­flokkar lykta og bragð­ast.

Til umræðu var frum­varp Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, sem felur í sér inn­leið­ingu á EES-reglum um vöru­merki. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu er fjallað um það hvernig til­koma nýrrar tækni breyti því hvað felst í hug­tak­inu vöru­merki.

„Breyt­ingin felur í sér útvíkkun á því hvað getur talist vöru­merki í takt við til­komu nýrrar tækni,“ segir í frum­varp­inu. „Vöru­merki þarf því ekki lengur nauð­syn­lega að vera sýni­legt, sbr. t.d. hljóð­merki, að því til­skildu að það hafi til að bera nægj­an­legt sér­kenni og að unnt sé að til­greina það í vöru­merkja­skrá á nægi­lega skýran og nákvæman hátt. Krafan um að unnt sé að til­greina merki á full­nægj­andi hátt í vöru­merkja­skrá úti­lokar þannig ekki skrán­ingu óhefð­bund­inna merkja og er því hugs­an­legt að t.d. lykt eða bragð geti verið vöru­merki.“

Jón Þór ræddi sér­stak­lega um þetta atriði í umræðum um málið í gær. „Þegar við tökum svona ákvarð­anir verðum við að passa okkur að stíga ekki skref, opna hurð­ar­gátt­ina, fyrir hlutum eins og því að setja lykt og bragð sem part af vöru­merki. Prófum þetta. Hér er fram­sögu­maður máls­ins, hin virðu­lega Halla Signý Krist­jáns­dóttir. Byrjum á Fram­sókn­ar­flokknum. Hvernig mundi lykt og bragð Fram­sókn­ar­flokks­ins vera?“

Halla Signý skaut þá inn í: „Fjósið!“

„Fjósið, fjósið segir hátt­virtur þing­maður,“ sagði Jón Þór og hló. „Ókei, þarna er hátt­virtur þing­maður greini­lega búinn að gera til­kall til þess, þannig að þegar þessi lög eru sam­þykkt þá legg ég til að hátt­vertur þing­maður, Halla Signý Krist­jáns­dóttir, drífi sig niður á vöru­merkja­skrif­stof­una og skrái fjósið áður en að Mið­flokk­ur­inn nær fjósa­lykt­inni.“

Þingmenn hlógu í kjöl­farið. „Ég get róað hátt­virtan þing­mann með því að Gunnar Bragi Sveins­son, þegar ég spurði hann út í þetta, ég spurði hann einmitt hvort hann ætl­aði að taka fjósa­lykt­ina og hann sagði: „Við tökum hesta­lykt­ina“.“

„ Ég held að fyrir kosn­ingar hafi bragðið af Vinstri grænum verið ansi sætt“

Jón Þór spurði þá Njál Trausta Frið­berts­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks, í fram­hald­inu hver lyktin eða bragðið yrði af flokknum en komust þeir ekki að nið­ur­stöðu þó að ilm­vatnið Old Spice hafi verið nefnt. „Prófum Vinstri græna. Ég held að fyrir kosn­ingar hafi bragðið af Vinstri grænum verið ansi sætt. Bragð breyt­ing­anna og að gera betur. Mjög sætt, mjög sætt á bragð­lauk­ana. Mig grunar samt sem áður að bragðið sé orðið ansi beiskt í dag.“

„Píratar eru mjög hrifnir af bjór“

Loks velti hann því upp hvert bragðið yrði af Pírötum. „Væri það romm? Kannski. Rommi hefur oft verið kastað að Pírötum. Bjórlykt? Það er annað, Píratar eru mjög hrifnir af bjór. Allavega ekki skötu­lykt, við vitum það. Við borðum ekki skötu eða annan þjóð­legan mat, þannig að kannski væri það bjór­inn.“

Jón Þór bætti því við að öllu grínu sleppti væri tekið fram í grein­ar­gerð frum­varps­ins að bragð og lykt geti heyrt undir skrán­ingu vöru­merkja. Hann spurði hvort hægt væri að und­an­skylja þessi atriði við inn­leið­ingu EES-regln­anna. „Það er eig­in­lega svo­lítið óbragð af því,“ bætti hann við.

Halla Signý svar­aði því að inn­leið­ingin liðk­aði fyrir íslenskum fyr­ir­tækjum með mark­aðs­setn­ingu sína erlendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár