44. spurningaþraut: Hvaða dýr er þetta, og fleiri spurningar

44. spurningaþraut: Hvaða dýr er þetta, og fleiri spurningar

Auka­spurn­ingar snú­ast að venju um mynd­irnar sem hér fylgja:

Hvað heitir dýrið hér að ofan sem kúrir í feldi móður sinnar?

Hvað heitir hljóm­platan sem við sjáum albúms­brot af hér að neðan?

1.   Hringar úr ryki, grjóti og ísmolum eru umhverfis nokkrar reiki­stjörnur. Utan um hvaða plánetu eru þeir lang­mest áber­andi?

2.   „Nú er frost á Fróni / frýs í æðum blóð, / kveður kulda­ljóð / Kári í jöt­un­móð.“ Hver orti þetta? Hér þarf for­nafn með ann­að­hvort föð­ur­nafni eða alkunnu við­ur­nefni.

3.   Úr hvaða bók er þessi ævin­týra­lega frá­sögn: „Á þeim tímum voru risarnir á jörð­inni og einnig síðar er synir Guðs höfðu sam­farir við dætur mann­anna og eign­uð­ust með þeim börn. Það voru hetj­urnar sem í fyrnd­inni voru víð­frægar.“

4.   Kvik­mynda­stjarnan Laura Dern þykir aukast að íþrótt og frægð með hverju árinu en und­an­farið hefur hún vakið athygli í mynd­inni Little Women og sjón­varps­s­er­í­unni Big Little Lies. Áður hafði hún meðal ann­ars í Twin Peaks og risa­eðlu­myndum úr smiðju Steven Spi­el­bergs. En fyrir 34 árum kom Laura Dern fyrst fram á sjón­ar­sviðið í víð­frægri  og gríð­ar­lega töff mynd David Lynch, þar sem hún lék korn­ung á móti stjörnum eins og Isabellu Rossell­ini, Kyle MacLachlan og Dennis Hopper. Hvað hét þessi mynd?

5.   Rúss­neski kvik­mynda­leik­stjór­inn Andrei Tar­kov­skí þótti einn mesti lista­maður hvíta tjalds­ins á ofan­verðri 20. öld. Íslensk leik­kona lét í síð­ustu mynd hans árið 1985. Myndin hét Fórnin en hver er leik­konan?

6.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Suður-Kóreu?

7.   Hvað hét faðir Elísa­betar Eng­lands­drottn­ingar?

8.   Hvað er mælt í ljósárum?

9.   Halldór Laxness fékk Nóbels­verð­laun árið 1955. Hver fékk þessi verð­laun árið á undan honum?

10.   Á Ítalíu eru þrjú virk eld­fjöll: Vesúvíus, Etna og ... ja, hvað heitir þriðja fjallið?

Svörin eru hér:

1.   Satúrnus.

2.   Kristján Jónsson fjalla­skáld.

3.   Bibl­í­unni.

4.   Blue Velvet. Sjá hér.

5.   Guðrún S. Gísla­dóttir.

6.   Seúl.

7.    Georg 6.

8.   Fjar­lægðir - í geimnum fyrst og fremst, enda ekki margt hér á jörðu sem þörf er á að mæla í ljósárum.

9.   Ernst Hemingway.

10.   Stromboli.

Dýrið heitir maura­æta.

Platan er vit­an­lega London Calling með The Clash.

Plötu­umslagið er svona:

Og hér er næsta þraut á undan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár