Covid-samsærið mikla

Sam­sær­is­kenn­ingar um kór­óna­veiruna hafa náð fót­festu í umræðu á net­inu og breið­ast hratt út. Án allra vís­inda­legra sann­ana er því meðal ann­ars haldið fram að far­síma­möstur valdi sjúk­dómnum, Bill Gates hafi hannað veiruna á til­rauna­stofu eða jafn­vel að fjöl­miðlar hafi skáldað far­ald­ur­inn upp og eng­inn sé í raun lát­inn af völdum Covid. Íslenskur læknir segir algengt að sjúk­lingar fái rang­hug­myndir um sjúk­dóma á net­inu og þær geti þvælst fyrir og gert læknum erfitt um vik.

Covid-samsærið mikla
Judy Mikovits For­sprakki Plandemic hefur árum saman talað fyrir ýmsum vafasömum kenn­ingum sem stang­ast á við þekkt vís­indi

Mynd­bandið Plandemic fór eins og eldur í sinu um netheima á dög­unum, þrátt fyrir að stjórn­endur Youtube gerðu sitt besta til að eyða því út af vefnum jafn­óðum. Því var einnig eytt af Facebook, Twitter, Vimeo og öðrum síðum en millj­ónir sáu mynd­bandið engu að síður.

Uppi­staðan í Plandemic er við­tal við sam­sær­is­kenn­inga­smið­inn Judy Mikovits. Hún hefur árum saman talað fyrir ýmsum vafasömum kenn­ingum sem stang­ast á við þekkt vís­indi. Mikovits heldur því meðal ann­ars fram að kór­óna­veiran hafi verið hönnuð á til­rauna­stofu og að þeir sem hafi fengið bólu­efni við flensu séu af ein­hverjum dul­ar­fullum ástæðum lík­legri til að smit­ast af COVID. Þá segir hún að and­lits­grímur séu hættu­legar þar sem þær valdi því að fólk smiti sjálft sig með því að anda að sér eigin vírusum og spít­alar séu vís­vit­andi að falsa COVID-smit til að fá hærri fjár­fram­lög frá rík­inu.

Læknar og vís­inda­menn um allan heim …

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár