Manneskja á sér litla von þegar uppgufun svita hættir

Fólk gæti glímt við vanda tengdan samspili mikils hita og raka fyrr en áætlað var. Þar sem hitastig og rakastig er mjög hátt getur það leitt til þess að uppgufun svitans hættir jafnvel alveg, sem er lífs­hættulegt ástand.

Sérfræðingar á sviði loftslags­vísinda hafa lengi haft áhyggjur af samspili aukins hitastigs á jörðinni vegna loftslags­breytinga og mikils raka. Það er nefnilega vel þekkt að erfiðara er fyrir okkur mann­fólkið að þola rakan hita en þurran.

Rann­sóknir hafa spáð því að með auknu hitastigi á jörðinni af völdum loftslags­breytinga munu íbúar í og nærri hita­beltinu upplifa sambland af miklum hita og raka í auknum mæli. Fram til þessa hafa vísinda­menn að mestu spáð því að þetta sé vandi sem gæti orðið að veruleika seint á þessari öld. Ný rannsókn bendir þó til þess að vandinn sé þegar hafinn.

Af hverju skiptir samspil hita og raka máli?

Líkt og við þekkjum vel kælir mannfólk sig með því að svitna. Ferlið hefst á því að líkaminn seytir svita út um svita­holur á húðinni. Svitinn gufar síðan upp af yfirborði húðarinnar. Við þetta losnar hiti af yfirborði líkamans og hjálpar okkur að halda hitastigi líkamans innan þeirra marka sem hann þolir.

Þetta jafnvægi er viðkvæmt og geta öfgar í veðurfari raskað því nokkuð fljótt. Uppgufun svita virkar til dæmis illa þegar andrúms­loftið er mjög rakt fyrir. Svitinn á þá erfiðara með að gufa upp í raka­mettað loftið og það hægist á uppgufuninni og þar með raskast jafnvægið á líkams­hita okkar.

Í tilfellum þar sem hitastig og rakastig er mjög hátt getur það leitt til þess að uppgufun svitans hættir jafnvel alveg. Manneskja í slíkum aðstæðum á sér litla von og líffæri líkamans byrja fljótlega að bila. Við slíkar aðstæður deyr einstaklingurinn á aðeins nokkrum klukku­stundum geti hann ekki komið sér í loftkælt skjól í tæka tíð.

Greindu þúsundir tilvika hás hita og mikils raka

Í rannsókn sem birtist í tíma­ritinu Science Advances í byrjun maí er fjallað um niður­stöður á breytingum á hitastigi í heiminum. Rannsóknar­hópurinn bar kennsl á þúsundir tilvika þar sem hátt loft­hitastig og mikill raki áttu sér stað samtímis á svæðum í Asíu, Afríku, Ástralíu, Suður-Ameríku og Norður-Ameríku.

Þessi tilvik áttu það sameiginlegt að vara í stuttan tíma og vera bundin við afmörkuð svæði. Þau gefa þó ástæðu til þess að hafa áhyggjur af fram­haldinu því ekkert bendir til annars en að þessum tilvikum muni fjölga á næstu árum og vara í lengri tíma.

Fjöldi tilfella tvöfaldaðist á rannsóknartímabilinu

Rann­sóknin byggði á gögnum frá árunum 1979 til 2017. Við greiningu á þeim komst rannsóknar­hópurinn að því að tilfelli öfga í samblandi af hitastigi og raka tvöfölduðust á tíma­bilinu.

Greina mátti endur­tekin tilfelli á Indlandi, í Bangladesh og Pakistan auk ákveðinna svæða í Ástralíu og við strendur Rauða hafsins og Gulf of California. Tilfelli þar sem sambland hita og raka var á þeim skala að geta valdið dauðsföllum hjá fólki yfir lengri tíma voru greind 14 sinnum í þremur borgum í Mið-Austur­löndum. Þessi tilfelli voru í borgunum Damman, Doha og Ras Al Khaimah. Samanlagt búa yfir 3 milljónir manna í borgunum.

Öfgafull tilfelli greindust einnig á svæðum í Suðaustur-Asíu, Suður-Kína, Afríku, Karíbahafinu og í Banda­ríkjunum.

En af hverju hafa fyrri rann­sóknir á þessu loftslags­fyrirbrigði ekki komist að sömu niður­stöðu? Að sögn rannsóknar­hópsins má rekja það til þess að fyrri rann­sóknir hafa eingöngu tekið til meðaltala yfir lengri tímabil á stærri svæðum. Þessi nýja rannsókn skoðaði hins vegar einn klukku­tíma í einu fyrir 7.877 veður­stöðvar sem gerði þeim kleift að greina styttri tilvik á minni svæðum.

Votur hiti mældist margoft yfir ákjósanlegum mörkum

Jafnvægið á milli hita og raka er metið út frá svokölluðum votum hita sem er mæli­kvarði á það hversu auðvelt það er fyrir vatn að gufa upp. Rann­sóknir hafa metið það svo að ef votur hiti nær 35 °C geti fólk ekki lifað í slíkum aðstæðum nema í afar stuttan tíma í einu. Allar mælingar yfir 30 °C eru erfiðar mannfólki og við 32 °C getur jafnvel hin heilbrigðasta manneskja ekki stundað eðlilega hreyfingu utandyra vandkvæða­laust.

Rannsóknar­hópurinn greindi tvöföldun á tilfellum þar sem votur hiti fór yfir 30 °C frá árinu 1979. Um 1.000 tilfelli greindust þar sem votur hiti náði 31 °C. Fram til þessa hefur verið talið að það hafi nær aldrei átt sér stað að votur hiti á jörðinni nái 33 °C. Rannsóknar­hópurinn greindi aftur á móti 80 slík tilfelli.

Gæti skapað vandamál mun fyrr en áætlað var

Það er mat rannsóknar­hópsins að við séum líklega nær því en áður var talið að aukin tilfelli þar sem votur hiti fer yfir ákjósanleg mörk eigi sér stað. Þetta segir Radley Horton, einn höfunda greinarinnar. Horton hefur rannsakað fyrir­bærið lengi og var meðal annars einn höfunda greinar sem birtist árið 2017 og mat það svo að tilfelli sem þessi myndu ekki skapa vandræði fyrr en mun seinna á öldinni.

Fyrir þann hluta mannfólks sem lifir við aðstæður þar sem aðgangur að loft­kælingu er góður þarf ekki að vera að þetta vandamál hafi mikil áhrif. Að minnsta kosti ekki til styttri tíma litið. Aftur á móti er fjöldi fólks sem býr ekki svo vel að hafa aðgang að rafmagni, hvað þá að loft­kælingu. Ekki er óalgengt að þessir einstaklingar hafi einnig lífs­viðurværi sitt af því að stunda erfiðis­vinnu utandyra og hafi því litla möguleika til þess að forðast hitann með góðu móti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þekking

Þekking

Alheimurinn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stórvirki mann­kynsins, James Webb geim­sjónaukinn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetrar­brauta alheimsins. Hvar og hvenær kviknaði fyrsta ljósið í alheiminum? Hvernig verða stjörnur og sólkerfi til? Hvernig mynduðust vetrar­brautirnar? Hvaða eðlis- og efna­fræðilega eigin­leika þurfa plánetur og sólkerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýrari, skarpari og glæsilegri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár