Hækkandi aldur móður eykur líkur á tvíburafæðingum

Tvíeggja tví­bura­fæð­ingar eru mun lík­legri meðal mæðra sem eru komnar yfir þrí­tugt.

Hækkandi aldur móður eykur líkur á tvíburafæðingum

Það að búa til barn krefst óhemju­mik­illar orku frá for­eldrum, þá sér­stak­lega móður. Flestir sjá kannski fyrir sér þá stuttu stund sem það tekur að und­ir­búa getnað, en fram að þeim tíma­punkti hafa báðir for­eldrar sett mikla orku í að búa til frumur sem henta vel í verkn­að­inn. Egg­fruman er sér­stak­lega stór fruma og þess vegna leggur móð­irin heil­mikla orku í hana og inn­viði hennar.

Þegar getn­aður hefur svo átt sér stað tekur við enn þá orku­frekara ferli, að búa fóstr­inu heim­ili í þær 40 vikur sem það tekur fyrir það að þroskast. Eðli máls­ins sam­kvæmt leggur móð­irin meiri lík­am­lega orku í það ferli, líf­eðl­is­fræði­lega séð. Svo er nú varla hægt að mæla þá orku sem for­eldrar leggja í umönnun ung­við­is­ins þegar það er loks­ins komið í heim­inn.

Frjósemi er háð aldri

Allt þetta ferli er líf­heim­inum sér­stak­lega mik­il­vægt. Það er nauð­syn­legt fyrir við­hald allra teg­unda að þessir ferlar séu skil­virkir og virki rétt. Hvernig lík­ami mann­fólks­ins bregst við minnk­andi frjó­semi með hækk­andi aldri er því for­vitni­legt við­fangs­efni margra vís­inda­hópa.

Það er vitað mál að frjó­semi hnignar með hækk­andi aldri, og þó það passi illa inn í nútíma­sam­fé­lög og þær félags­legu kvaðir sem þeim fylgja, þá er frjó­sem­is­tindur mann­eskj­unnar upp úr tví­tugu. Sam­fé­lags­gerð okkar hefur þó ýtt undir seinkun barn­eigna og meðal vest­ur­landa­búa er algengt að konur eign­ist ekki sitt fyrsta barn fyrr en eftir þrí­tugt. Upp úr fer­tugu eru konur þó yfir­leitt komnar úr barn­eign og lík­am­inn hættur að fram­leiða þau hormón sem til þarf fyrir fulla virkni æxl­un­ar­fær­anna.

Hormónabúskapur og frjósemi

Þegar fer að síga á seinni hluta frjó­sem­is­skeiðs kvenna breyt­ist að ein­hverju leyti horm­óna­bú­skapur þeirra. Breyt­ingar verða meðal ann­ars á þeim horm­ónum sem stjórna þroskun egg­bús­ins, sem er und­an­fari egg­loss.

Þegar eggbú þroskast hjá mann­fólki leiðir það yfir­leitt til þess að eitt egg leggur af stað niður eggja­leiðar­ann og von­ast til að frjóvg­ast. Á fyrri hluta tíða­hrings­ins fer styrkur  horm­óns sem heitir follicle stimulation hor­mone (FSH) stig­hækk­andi. Þetta hormón örvar myndun egg­bús­ins (follicle) og þar með þroskun eggs­ins sem losnar.

Hollensk rann­sókn frá 2006 bendir til þess að aukn­ing á FSH og þar af leið­andi tvö­falt egg­los er algeng­ara meðal kvenna sem eru yfir þrí­tugt. Fylgst var með 500 konum sem und­ir­geng­ust tækni­frjóvgun. Af þeim 500 egg­losum sem féllu innan ramma rann­sókn­ar­innar sást tvö­falt egg­los í 105 til­fellum. Þegar ald­urs­dreif­ing þeirra kvenna var skoðuð kom í ljós að aðeins 5 af þessum 105 konum voru undir þrí­tugu.

Aldur kvenna stýrandi breyta

Í sömu rann­sókn var fylgst með styrk FSH horm­óns­ins í blóði kvenn­anna og fannst þá línu­legt sam­band milli hækk­andi ald­urs og hækk­andi styrks horm­óns­ins.  Rann­sóknin gefur þess vegna vís­bend­ingar um að með hækk­andi aldri kvenna eykst líka styrkur þessa horm­óns í hverjum tíða­hring. Í sumum til­fellum verður styrkur horm­óns­ins svo hár að það nær að örva tvö eggbú til þrosk­unar. Við það verður tvö­falt egg­los.

Hormón sem stýra fósturþroska breytast líka

Þegar horft er yfir alþjóð­legar tölur tví­bura­fæð­inga kemur í ljós að tví­eggja tví­burar, sem verða til vegna tvö­falds egg­loss, fæð­ast frekar konum sem eru komnar yfir þrí­tugt. Það rímar vel við nið­ur­stöður hol­lenska rann­sókn­ar­hóps­ins, en ástæðan fyrir þessum breyt­ingum liggur þó ekki ljós fyrir.

Í rann­sókn sem ástr­alskur hópur birti í maí 2020 er rýnt í alþjóð­legar tölur um frjó­semi kvenna. Þar koma fram skýrar vís­bend­ingar um ástæðu þess að kven­lík­am­inn hefur þróað með sér aukn­ingu í FSH styrk með árunum. Um leið og líkur á tvö­földu egg­losi aukast, minnka nefni­lega líka lík­urnar á því að fóst­ur­þroski klárist. Þau hormón sem til þarf til að búa fóstr­inu heim­ili í þær 40 vikur sem til þarf fara nefni­lega hnign­andi.  

Það má því kannski líta svo á að þarna sé lík­am­inn að reyna að tryggja afkomu teg­und­ar­innar. Því fleiri egg sem frjóvg­ast, þeim mun meiri líkur eru á því að ein­hver þeirra lifi af. Með því að setja meiri orku í egg­losið bætir lík­am­inn því upp fyrir skort á þeim þáttum sem til þarf í fer­il­inn sem kemur á eftir.

Ítarefni

Frétt BBC um rann­sókn hol­lenska hóps­ins árið 2006

Grein ástr­alska rann­sókn­ar­hóps­ins

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár