Forstjóri Ríkiskaupa: Rannsókn vegna brota hefði ekki haft áhrif á valið

Forstjóri Ríkis­kaupa segir að það hefði ekki haft áhrif á niður­stöðu útboðs á kynningar­herferð fyrir Ísland ef það lægi fyrir að auglýsinga­stofan M&C Saatchi sæti rannsókn vegna bókhalds­brota. Liggja þurfi fyrir dómur eða stað­festing frá opinberum aðilum um að brot hafi átt sér stað. Íslenska auglýsinga­stofan Peel, samstarfs­aðili M&C Saatchi hér á landi, fullyrðir að að meirihluti fram­leiðslunnar vegna verk­efnisins muni fara fram hér á landi.

Úr herferðinni Inspired by Iceland
Úr her­ferð­inni Inspired by Iceland Stofn­endur aug­lýs­inga­stof­unnar Peel, sem er sam­starfs­að­ili alþjóð­legu aug­lýs­inga­stof­unnar M&C Saatchi, komu á sínum tíma að gerð her­ferð­ar­innar Inspired by Iceland. Á þeim tíma voru þeir starfs­menn Íslensku aug­lýs­inga­stof­unnar.

Mikil óánægja ríkir meðal íslenskra auglýsinga­stofa með þá ákvörðun Ríkis­kaupa að fela alþjóð­legu auglýsinga­stofunni M&C Saatchi gerð kynningar­herferðarinnar „Ísland saman í sókn“ eða Destination Iceland, sem ætlað er að laða erlenda ferðamenn aftur til Íslands. Allar stærstu auglýsinga­stofur hér á landi tóku þátt í útboðinu en í það heila bárust 15 tillögur, 8 erlendar og 7 innlendar. M&C Saatchi í samstarfi við íslensku auglýsinga­stofuna Peel varð fyrir valinu. 

Greint var frá því í frétt á vef mbl.is í dag að M&C Saatchi sæti rannsókn breska fjármála­eftirlitsins vegna bókhalds­misferlis. Í svari Halldórs Ó. Sigurðs­sonar, forstjóra Ríkis­kaupa, við þeirri spurningu Stundarinnar hvort Ríkiskaup hafi verið meðvituð um þá rannsókn og hvort hún hafi verið tekin inn í myndina þegar ákvörðun var tekin um að skipta við stofuna, sagði hann frétt eða rannsókn á þessu stigi ekki hafa áhrif á val bjóðanda. Liggja þurfi fyrir dómur eða stað­festing frá opinberum aðilum um að einhver brot hafi átt sér stað. Í svari hans segir jafnramt að tilboðin séu valin út frá fyrir­framgefnum valforsendum og hæfis­kröfum sem fram koma í útboðs­gögnum í samræmi við íslensk lög. „Ríkis­kaupum ber skylda til að staðfesta að útilokunar­ástæður 68. gr. laga um opinber innkaup eigi ekki við um fyrirtæki áður en endanlegur samningur er gerður. Á þessari stundu er ekkert sem bendir til þess að um slíkt sé að ræða. Í 68. gr. segir m.a. að „bjóðandi sem hefur verið sakfelldur með endanlegum dómi“ fyrir tiltekin afbrot skal útilokaður frá þátttöku í innkaupa­ferli. Lögin heimila ekki að ákvarðanir um val á bjóðendum byggi á frétta­flutningi heldur á stað­reyndum og ef svo ber undir endanlegum dómum um afbrot. Fyrir­tækið stóðst allar hæfis­kröfur útboðs­gagna en eins og fyrr er nefnt þá verður að leita endanlegra stað­festinga um hæfi bjóð­andans áður en gengið er frá endanlegum samningi.“

„Fyrir­tækið stóðst allar hæfis­kröfur útboðs­gagna“

Þá bendir hann á að lög um opinber innkaup byggi á þeirri forsendu að Ísland er aðili að Evrópska efnahags­svæðinu og skylt sé að auglýsa útboð þar ef fjárhæðir fara yfir ákveðin viðmiðunar­mörk. 

Auglýsinga­stofan M&C Saatchi sendi frá sér yfir­lýsingu í gærkvöldi, þar sem brugðist var við umræðunni hér á landi um rann­sóknina. Þar segir að aldrei hafi verið ætlunin að leyna neinu hvað hana varðar. „Fjallað hefur verið um þetta mál nokkuð ítarlega í breskum og alþjóð­legum fjöl­miðlum. Um er að ræða gamalt mál sem tengist eingöngu málefnum eignarhalds­félagsins og ferlum þess við upplýsinga­gjöf sem skráð félag. Mikilvægt er að fram komi að félagið upplýsti um það að eigin frumkvæði. Í kjölfarið hefur umrætt vinnulag verið endur­skoðað og nýr fjármála­stjóri og algjör­lega nýtt fjármála­teymi hafa tekið við hjá eignarhalds­félaginu. Enginn þeirra sem ábyrgð báru starfa þar lengur. Málið hefur jafnframt engin áhrif haft á þau dóttur­félög M&C Saatchi Group sem unnu að sigur­tillögunni að komandi markaðs­herferð íslenskrar ferða­þjónustu. Ekkert þessara dóttur­fyrirtækja og eða einstaklingar innan þeirra tengdust málinu sem fjallað er um í umræddri frétt Morgun­blaðsins,“ segir meðal annars í yfir­lýsingunni. 

Munaði litlu á fyrstu og öðru sæti

M&C Saatchi hlaut 87,17 stig af hundrað mögulegum en auglýsinga­stofan Pipar/TBWA, sem hafnaði í öðru sæti, hlaut 86,35 og munaði því innan við einu stigi á tillögunum. Guðmudur Hrafn Pálsson, framkvæmda­stjóri auglýsinga­stofunnar Pipar/TBWA, sem jafnframt er formaður Sambands íslenskra auglýsinga­stofa, er meðal þeirra sem lýst vonbrigðum með niður­stöðuna. Í viðtali við mbl.is sagði hann bæði skrýtið og svekkjandi að á tímum þegar stjórn­völd séu með verkefni um að velja eigi íslenskt skuli jafnstórt verkefni og raun ber vitni fara úr landi. Verkefni hér á landi skapi bæði tekjur og vinnu fyrir Íslendinga. 

Segir stóran hluta framleiðslunnar fara fram hér

Forsvars­menn auglýsinga­stofunnar Peel, sem eru fyrr­verandi starfs­menn Íslensku auglýsinga­stofunnar og unnu þar meðal annars að verk­efninu Inspired by Iceland, hafa sent frá sér tilkynningu þar sem brugðist er við umræðu um niður­stöðu útboðsins. Þar segja þeir að meirihluti fram­leiðslunnar vegna herferðarinnar verði hér á landi. Peel hyggist ráða önnur innlend framleiðslu­fyrirtæki og fleira vant auglýsinga­fólk til að vinna með sér að átakinu. „Við ætlum að auglýsa Ísland sem áfanga­stað í öðrum löndum. Stór hluti af fram­leiðslunni mun fara fram hér því þekkingin á landinu sem við erum að markaðs­setja skiptir máli. Við ætlum að ráða til okkar fjölda íslenskra undir­verktaka á ýmsum sviðum fram­leiðslunnar og því munu margir fleiri njóta góðs af verk­efninu,“ er haft eftir Magnúsi Magnússyni, stofnanda og framkvæmdatjóra Peel í tilkynningunni. Segir hann að til standi að markaðs­setja Ísland í útlöndum. Til þess að ná góðum árangri þurfi að vinna með fólki sem þekkir vel til á þeim mörkuðum og starfa þar alla daga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár