#metoo (en ekki þú)

Joe Biden, fyrr­ver­andi vara­for­seti Banda­ríkj­anna og fram­bjóð­andi Demókrata í kom­andi for­seta­kosn­ingum í nóv­em­ber, er sak­aður um kyn­ferð­is­brot. Lítið hefur farið fyrir umræðu um þessar ásak­anir en Biden neitar þeim stað­fast­lega, auk þess sem sam­flokks­menn hans hafa slegið um hann skjald­borg. Þrátt fyrir að Biden hafi lengi þótt hegða sér á óvið­eig­andi hátt í nær­veru kvenna, og Demókratar hafi gagn­rýnt Donald Trump harð­lega fyrir svip­aða fram­komu, er nú gefið skot­leyfi á trú­verð­ug­leika kon­unnar sem steig fram til að segja sögu sína.

#metoo (en ekki þú)

„Nei, ég hef ekk­ert sett mig í sam­band við hana, þetta var fyrir 27 árum og þetta gerð­ist aldrei,“ sagði Joe Biden í sjón­varps­við­tali þegar hann var spurður hvort hann hefði átt ein­hver sam­skipti við konu að nafni Tara Reade eftir að hún steig fram til að saka hann um kyn­ferð­is­brot.

Málið er væg­ast sagt óþægi­legt fyrir Demókra­ta­flokk­inn vest­an­hafs en flokks­menn hafa áður notað með­byr #metoo hreyf­ing­ar­innar til að koma höggi á Donald Trump fyrir hans alræmdu hegðun og ummæli um að grípa í sköp kvenna. Tara Reade segir að það sé nákvæm­lega það sem Biden hafi gerst sekur um þegar hún mætti honum á fáförnum skrif­stofu­gangi í Washington fyrir tæpum þremur ára­tugum. Hún var þá hluti af starfs­liði hans sem öld­unga­deild­ar­þing­maður.

Reade segir að hún hafi verið að færa honum íþrótta­tösku sem aðstoð­ar­maður Bidens bað hana fyrir. Eftir að hann tók við tösk­unni hafi Biden þrýst henni …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár