Ekkert samráð haft við kennara um sumarkennslu

Verja á 800 millj­ónum króna í sum­ar­kennslu í fram­halds- og háskólum, sam­kvæmt ákvörðun stjórn­valda. Ekkert sam­ráð hefur verið haft við kenn­ara á þessum skóla­stigum vegna þessa, að sögn for­manna stétt­ar­fé­laga þeirra. Þeir segja að það sé kenn­urum í sjálfs­vald sett hvort þeir taki að sér að kenna í sumar og benda á að mikið álag hafi verið á kenn­urum und­an­farna mán­uði.

Ekkert samráð haft við kennara um sumarkennslu
Háskóli Íslands Ekkert sam­ráð hefur verið haft við kenn­ara í háskólum og fram­halds­skólum um kennslu í fyr­ir­hug­uðu sum­ar­námi sem kynnt var í síð­ustu viku, en verja á 500 millj­ónum til þess á háskóla­stigi og 300 millj­ónum á fram­halds­skóla­stigi. Mynd: Kristinn Magnússon

Ekkert sam­ráð hefur verið haft við kenn­ara í háskólum og fram­halds­skólum um fyr­ir­hugað sum­ar­nám sem kynnt var í síð­ustu viku. Formaður Félags háskóla­kenn­ara seg­ist engar upp­lýs­ingar hafa aðrar en þær sem komið hafi fram í fréttum og for­maður Félags fram­halds­skóla­kenn­ara segir að þessi ákvörðun hafi komið flatt upp á sig. 

Lilja Alfreðs­dóttir kynnti í síð­ustu viku þá ákvörðun stjórn­valda að veita 800 millj­ónum króna til fram­halds- og háskóla svo unnt yrði að bjóða náms­mönnum upp á nám í sumar. Í til­kynn­ingu á vef mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að mark­miðið sé að sporna gegn atvinnu­leysi hjá ungu fólki og efla menntun. Veita á 500 millj­ónum í sum­ar­nám á háskóla­stigi og 300 millj­ónum til sum­ar­náms í fram­halds­skól­unum. Námsmenn geti þannig flýtt fyrir námslokum og komið fyrr full­numa út í atvinnu­lífið, eins og ráð­herra kemst að orði í til­kynn­ing­unni.

Michael DalHann segir að þegar sum­ar­nám­skeið hafi verið haldin, þá hafi það verið í sam­ráði við kenn­ara.

Þar segir jafn­framt að mark­hópar sum­ar­náms­ins á háskóla­stigi séu núver­andi nem­endur, fram­tíð­ar­nem­endur, fag­að­ilar, þátt­tak­endur í sprota­verk­efnum háskóla og atvinnu­lausir. „Þetta hefur ekk­ert verið rætt við okkur,“ segir Michael Dal,  for­maður Félags háskóla­kenn­ara. „Satt best að segja kem ég alveg af fjöllum. Þessar 500 millj­ónir virð­ast benda til þess að það eigi að kenna nokkuð mörg nám­skeið, til þess þarf nokkuð marga kenn­ara.“

Engin umræða hefur farið fram

Michael segir að reyndar sé ekki nýtt að háskóla­kenn­arar sinni störfum að sum­ar­lagi, alltaf sé eitt­hvað um kennslu á þessum árs­tíma og þá sé alltaf eitt­hvað um að háskóla­kenn­arar taki að sér verk­efni á sumrin sem tengj­ast loka­verk­efnum nem­enda. „Þegar sum­ar­nám­skeið hafa verið haldin, þá er það alltaf í sam­ráði við kenn­ara og þeir geta neitað því ef þeir vilja. Það þarf líka að hafa í huga að þeir eiga 30 daga lög­bund­inn orlofs­rétt,“ segir Michael.

„Satt best að segja kem ég alveg af fjöllum“

Heldurðu að háskóla­kenn­arar séu almennt til í að sinna kennslu í sumar? „Það eru örugg­lega ein­hverjir til í það. En sú umræða hefur ekki farið fram vegna þess að þetta hefur ekk­ert verið kynnt fyrir okkur.“

Ekkert eðlilegt í þessu ástandi

Guðjón Hreinn Hauksson„Við höfum ekki tekið þetta til skoð­unar ennþá vegna þess að við höfum litlar upp­lýs­ingar um hvernig þetta á vera,“ segir Guðjón.

Guðjón Hreinn Hauksson for­maður Félags fram­halds­skóla­kenn­ara segir að ekk­ert sam­ráð hafi verið haft við félagið um sum­ar­kennslu, en hann viti til þess að skóla­meist­arar í fram­halds­skólum hafi verið hafðir með í ráðum. „Við höfum ekki tekið þetta til skoð­unar ennþá vegna þess að við höfum litlar upp­lýs­ingar um hvernig þetta á vera,“ segir Guðjón. „Þetta kemur flatt upp á okkur. Auðvitað hefði verið eðli­legt að við kæmum að þessu, en það er reyndar ekk­ert eðli­legt í þessu ástandi sem við erum í núna vegna COVID-19.“

Ákveðin neyðarráðstöfun

Að sögn Guðjóns eru þegar til heim­ildir fyrir sum­ar­kennslu á fram­halds­skóla­stigi og hann segir að ein­staka fram­halds­skólar hafi boðið upp á sum­ar­nám und­an­farin ár og þá ráði kenn­arar sig í þau verk­efni. 

„Ég ætla rétt að vona að við fáum að taka þátt í áfram­hald­andi sam­tali og við munum fylgja því eftir að svo verði“

Hann segir að fram­halds­skóla­kenn­arar hafi tekið á sig mikla við­bót­ar­vinnu und­an­farna mán­uði með því að breyta kennslu­til­högun sinni á skömmum tíma og færa alla kennslu yfir í fjar­nám. Þeir hafi verið undir for­dæma­lausu álagi og alls óvíst um hversu margir þeirra séu til­búnir til að kenna í sumar. „Það er eitt­hvað sem fólk velur sjálft. Fólk þarf að geta fengið sitt lög­bundna sum­ar­leyfi. Ef ekki, þá þurfa að koma til álags­greiðslur og það hefur ekki verið rætt um það, að minnsta kosti ekki við okkur. Það er ráðu­neyt­is­ins að taka svona ákvörðun og þetta er ákveðin neyð­ar­ráð­stöfun, en ég ætla rétt að vona að við fáum að taka þátt í áfram­hald­andi sam­tali og við munum fylgja því eftir að svo verði,“ segir Guðjón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár