Heimilisofbeldi eykst í faraldrinum – tvær látnar

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hefur óskað eftir fram­leng­ingu á gæslu­varð­haldi yfir sam­býl­is­manni konu sem fannst látin í heima­húsi í Sand­gerði að kvöldi 28. mars. Fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins, dóms­mála­ráð­herra og rík­is­lög­reglu­stjóri lýsa allar yfir áhyggjum af auknu heim­il­is­of­beldi. Flest bendir til þess að tvær konur hafi verið myrtar í heima­húsum á Íslandi eftir að kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn braust út.

Heimilisofbeldi eykst í faraldrinum – tvær látnar

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hefur óskað eftir því að gæslu­varð­hald yfir manni, sem hand­tek­inn var í kjöl­far þess að sam­býl­is­kona hans fannst látin á heim­ili þeirra í Sand­gerði, verði fram­lengt. Þetta stað­festir lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum, Ólafur Helgi Kjart­ans­son. Sagði hann rann­sókn máls­ins miða áfram, slíkar rann­sókn sé flókin og ómögu­legt að segja til um hversu langan tíma taki að ljúka henni. Sagðist ekki geta veitt neinar frek­ari upp­lýs­ingar um málið. Gæslu­varð­haldið átti að renna út í dag.

Annar maður situr einnig í gæslu­varð­haldi, grun­aður um að hafa myrt móður sína. Hún fannst látin á heim­ili sínu aðfara­nótt 6. apríl síð­ast­lið­inn. 

Bæði atvikin áttu sér stað í heima­húsum eftir að kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn braust út. Þekkt er að heim­il­is­of­beldi auk­ist þegar aðstæður sem þessar eru uppi í þjóð­fé­lag­inu. Um það ræddi Sig­þrúður Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins, þegar hún var gestur á upp­lýs­inga­fundi COVID-teym­is­ins á sunnu­dag. Sagði hún margt benda til þess að ofbeldi hafi auk­ist í sam­fé­lag­inu eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn braust út. 

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra lýsti yfir áhyggjum af auknu heim­il­is­of­beldi í pistli í Frétta­blað­inu á mánu­dag. Sagði hún nauð­syn­legt að tryggja öryggi þeirra sem búa við heim­il­is­of­beldi. Hún hafi komið þeirri ósk á fram­færi við Rík­is­lög­reglu­stjóra að aðgerðir til að bregð­ast við heim­il­is­of­beldi verði teknar til sér­stakrar umræðu á fundi lög­reglu­ráðs í vik­unni.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri hefur stað­fest að til­kynn­ingum um heim­il­is­of­beldi hafi fjölgað að und­an­förnu. Það gerði hún þegar hún var gestur í morg­un­þætti Rásar 1 og 2 á dög­unum. Þar tal­aði hún um þá stað­reynd að tvær konur hafa lát­ist á heim­ilum sínum eftir að far­ald­ur­inn braust út, þar sem grunur leikur á að þeim hafi verið ráð­inn bani. Sagði hún að heim­il­is­of­beldi hefði verið rætt á fundi rík­is­lög­reglu­stjóra á Norð­ur­löndum í síð­ustu viku. Allir hefðu þeir lýst yfir áhyggjum af því að það væri að aukast. 

Sig­þrúður benti á ábyrgð sam­fé­lags­ins. „Okkur ber að til­kynna til barna­verndar höfum við ástæðu til að ætla að barn búi við óvið­un­andi aðstæður,“ sagði hún. Að rétta þeim hjálp­ar­hönd geti skipt öllu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....
Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast
InnlentCovid-19

Mána­garðs­börnin orðin fimm á gjör­gæslu – Rúmlega 40 börn hafa smit­ast

Áfram bæt­ist í hóp barna sem liggja á gjör­gæslu vegna E.coli-sýk­ingar en þau eru nú orðin fimm tals­ins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barna­spít­ala Hrings­ins. Smitið kom upp á leik­skól­anum Mána­garði fyrir rúmri viku en rúm­lega 40 börn en ekki nein börn utan leik­skól­ans hafa smit­ast. Ennþá er verið að bíða eftir nið­ur­stöðu úr sýnum frá starfs­mönnum leik­skól­ans....
Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár