Stuðningur við ríkisstjórnina stóreykst á tímum heimsfaraldurs

Fylgið flykk­ist á bak­við Sjálf­stæð­is­flokk­innn. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina eykst um 16 pró­sentu­stig. VG og Framsókn upp­skera ekki eins og Sjálf­stæð­is­flokkur.

Stuðningur við ríkisstjórnina stóreykst á tímum heimsfaraldurs
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fyrir miðið, með Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur til hægri og Jóni Gunn­ars­syni til vinstri. Mynd: Halldór Ingi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með næstum tvö­falt meira fylgi en næsti flokkur, í nýrri könnun MMR á stuðn­ingi við flokka í alþing­is­kosn­ingum. Flokk­ur­inn eykur fylgi sitt um sex pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun og mælist með 27,4% fylgi.

Næst á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum kemur Sam­fylk­ingin með 14,7% fylgi. Þá mæl­ast Píratar, Mið­flokk­ur­inn, Vinstri græn og Viðreisn öll með um 10% fylgi, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 8% og Sós­í­alista­flokk­ur­inn 4,7%.

Síðasta könnun MMR var gerð fyrir rúmum mán­uði síðan, en þá mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokkur með 21,3% fylgi. Á þeim mán­uði sem er lið­inn, og ein­kenn­ist af vax­andi vanda vegna heims­far­ald­urs COVID-19, hefur Mið­flokk­ur­inn tapað 2,6% fylgi, flokkur Fólksins misst 1,1% af fylgi sínu og þeim fækkað um 1% sem velja aðra flokka en þá sem hér hafa verið nefndir.

Í síð­ustu könnun Gallup, sem birt var 29. febr­úar síð­ast­lið­inn, fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aðeins 22% fylgi.

Þótt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn upp­skeri vel í könn­un­inni vegnar hinum rík­is­stjórn­ar­flokk­unum ekki eins vel. Vinstri græn standa í stað en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir við sig 0,7% fylgi. 

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina stór­eykst hins vegar. Hann mælist nú 52,9% og hækkar um rúm fjórtán pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun, þar sem stuðn­ingur mæld­ist 38,8%.

Fylgi flokkaLituðu súl­urnar sýna fylgi flokka í síð­ustu könnun MMR sem var fram­kvæmd 18. til 20. mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár