Allt öðruvísi efnahagshögg en í hruninu 2008

Viðbrögð stjórn­valda skipta miklu til að milda efna­hags­leg áhrif COVID-19 á heim­ilin. Ekki er búist við höggi á fast­eigna­mark­aðnum eða stökk­breyt­ingu verð­tryggðra lána eins og 2008. Doktor í hag­fræði kallar eftir því að stjórn­völd ábyrgist laun allra lands­manna og víki frá banni við miklum halla­rekstri rík­is­sjóðs.

Allt öðruvísi efnahagshögg en í hruninu 2008
Stjórn­völd bregð­ast við Mikið veltur á við­brögðum hag­stjórn­ar­að­ila hversu alvar­leg lang­tíma­á­hrif COVID-19 veirunnar verða á efna­hags­lífið, að mati sér­fræð­inga. Mynd: Heiða Helgadóttir

Heimilin ættu að kom­ast mun betur undan efna­hags­lega högg­inu sem fylgir afleið­ingum COVID-19 veirunnar en banka­hrun­inu 2008 að mati sér­fræð­inga. Nið­ur­staðan mun þó velta á því hvort stjórn­völd tryggi áfram­hald­andi tekjur þeirra sem lenda í sótt­kví eða missa vinn­una, hvort bankar verði fyr­ir­tækjum lið­legir og hversu lengi sam­komu­bann og aðrar slíkar hindr­anir verða til staðar.

Ólafur Mar­geirs­son, doktor í hag­fræði, segir ljóst að aðal­höggið fyrir Ísland komi vegna ferða­þjón­ust­unnar. Atvinnu­greinin er ábyrg fyrir tæp­lega 40 pró­sent gjald­eyr­is­tekna þjóð­ar­bús­ins. „Í dag eru það flug­fé­lög, hótel, veit­inga­staðir og smá­sala sem verða fyrir mesta áfall­inu,“ segir hann. „Ef þessu lýkur eftir mánuð eða tvo mán­uði þá verður þetta fljótt að koma til baka. En um leið og tíma­bilið leng­ist og lausafé þess­ara fyr­ir­tækja hverfur, lána­línur þeirra bresta og þau fara á haus­inn, þá mynd­ast atvinnu­leysi. Áföllin fara þá að dreifast í skrif­stofu­geir­ann og halda þaðan áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár