Kvenleikinn tvíeggja sverð í bandarískum stjórnmálum

Línurnar eru að skýr­ast í for­vali Demókra­ta­flokks­ins fyrir kom­andi for­seta­kosn­ingar og ljóst er að enn og aftur er það hvítur karl­maður í eldri kant­inum sem verður fyrir val­inu. Þrátt fyrir að nokkrar fram­bæri­legar konur hafi gefið kost á sér virt­ust þær aldrei eiga mögu­leika og fengu tak­mark­aða athygli fjöl­miðla. Deilt er um hvaða áhrif ósigur Hillary Clinton gegn Donald Trump hafi haft á stöðu kvenna í flokknum.

Kvenleikinn tvíeggja sverð í bandarískum stjórnmálum
Tulsi Gabbard, Elizabeth Warren og Amy Klobuchar

Valið um for­seta­efni Demókra­ta­flokks­ins virð­ist nú fyrst og fremst standa á milli Joe Biden og Bernie Sanders, sér­stak­lega eftir að Michael Bloomberg helt­ist úr lest­inni. Þegar þetta er skrifað eru auk þeirra enn í fram­boði tvær konur; Elizabeth Warren og Tulsi Gabbard. Þriðja konan, Amy Klobuchar, dró fram­boð sitt til baka á dög­unum eftir slakt gengi.

Klobuchar hefur sér­stak­lega talað um að gerðar séu mun meiri kröfur til kvenna en karla í stjórn­málum, þeir kom­ist upp með reynslu­leysi og ögrandi hegðun sem yrði aldrei liðin frá konum. Skoð­ana­kann­anir og sam­an­burð­ar­rann­sóknir benda til þess að hún hafi nokkuð til síns máls. Kjós­endur séu ólík­legri til að fyr­ir­gefa kven­kyns fram­bjóð­endum mis­tök og gagn­rýni þær frekar fyrir þætti á borð við reynslu­leysi.

Meðal þeirra sem hafa rann­sakað þetta er Nichole Bauer, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Louisiana State Uni­versity, LSU. Hún birti nið­ur­stöður sínar í fyrra og segir áhrifin skýr. „Meira að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár