Mynd: Heiða Helgadóttir

Spilin taka allt

Georg F. Ísaksson er óvirkur spilafík­ill, en um ára­tuga skeið spil­aði hann fjár­hættu­spil, stund­aði veð­mál og sótti spila­kassa­staði. Hann hefur barist við aðrar fíknir, en segir spilafíkn­ina erf­ið­asta viður­eignar.

„Spilin taka allt. Allan pen­ing og allan tíma. Öll tæki­færi til að gera eitt­hvað annað. Ég hef barist við aðrar fíknir, en spilafíknin er sú fíkn sem ég hef átt erf­ið­ast með að losna við.“ Þetta segir Georg F. Ísaksson laga­nemi. Hann barð­ist við spilafíkn um ára­tuga­skeið en hefur nú ekki spilað í sex ár. 

„Ég held að ég hafi verið tíu ára þegar ég fór fyrst í spila­kassa, það var í kringum 1980,“ segir Georg. „Það var strax eitt­hvað þá sem höfð­aði mjög sterkt til mín og upp frá því var tónn­inn gef­inn. Þegar ég komst á ung­lingsár spil­aði ég í kössum, stund­aði veð­mál, spil­aði í spila­klúbbum og eig­in­lega alls staðar þar sem ég gat spilað eða veðjað fyrir pen­inga. Ég flosn­aði ítrekað upp úr fram­halds­skóla­námi því ég þurfti að eiga fyrir þessu, fór að vinna en launin dugðu ekki til og á end­anum var ég far­inn að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Spilafíkn á Íslandi

Virkilega sorglegt að horfa upp á fólk í þessum aðstæðum
FréttirSpilafíkn á Íslandi

Virki­lega sorg­legt að horfa upp á fólk í þessum aðstæðum

„Þegar fólk kom og bað mig um að stoppa spila­mennsku hjá fjöl­skyldu­með­limi eða vini var fátt sem ég gat gert. Þetta er lög­leg starf­semi og það er ekki hægt að hindra full­orðið fólk í því sem það vill gera.“ Þetta segir fyrr­ver­andi starfs­maður á spila­kassa­stað. Fram­kvæmda­stjóri Íslands­spila segir að allir starfs­menn fái fræðslu um spilafíkn og spila­vanda.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár