Úr skugga írska lýðveldishersins

Sinn Fein-flokk­ur­inn fékk flest atkvæði í nýaf­stöðnum þing­kosn­ingum á Írlandi en hinir tveir stærstu flokkar lands­ins neita að vinna með honum í stjórn. Sinn Fein var lengi póli­tískur vængur hryðju­verka­sam­tak­anna sem kenndu sig við írska lýð­veld­is­her­inn en flokks­menn hafa unnið hörðum höndum að því að end­ur­skapa ímynd sína eftir að vopna­hlé komst á í Norður-Írlandi.

Úr skugga írska lýðveldishersins
Leið­tog­inn Flokk­ur­inn hefur unnið hörðum höndum að því að breyta ásýnd sinni. Hér ræðir Mary Lou McDonald, núver­andi leið­togi Sinn Fein, við fjöl­miðla í Dublin þann 5. febr­úar. Mynd: Shutterstock

 Sinn Fein þýðir ein­fald­lega „Við sjálf“ og var flokk­ur­inn stofn­aður sem sjálf­stæð­is­hreyf­ing írskra lýð­veld­is­sinna árið 1905 þegar öll eyjan var undir stjórn Breta. Margir flokks­menn tóku þátt í páska­upp­reisn­inni gegn breskum yfir­ráðum árið 1916 og börð­ust í sjálf­stæð­is­stríð­inu sem lauk árið 1921. 

Írar skipt­ust í tvær fylk­ingar í afstöðu sinni til þeirra frið­ar­samn­inga sem Bretar buðu eftir átökin og leiddi það til skamm­vinns borg­ara­stríðs sem varð til þess að Sinn Fein klofn­aði marg­sinnis. Tvö helstu klofn­ings­fram­boðin, Fianna Fáil og Fine Gael, urðu í kjöl­farið tveir langstærstu flokk­arnir í írskri póli­tík fram til dags­ins í dag og hafa skipst á að leiða rík­is­stjórnir írska lýð­veld­is­ins.

Hug­mynda­fræði­lega er nán­ast eng­inn munur á þessum tveimur flokkum; þeir eru báðir hægra megin við miðju, Evr­ópu­sinn­aðir og borg­ara­legir. Sinn Fein hefur hins vegar frá 1970 verið föst stærð í stjórn­ar­and­stöðu, skil­greint sig nokkuð til vinstri við miðju og jafn­vel …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár