Inga Sæland fer með ósannindi um kórónaveiruna

Formaður Flokks fólks­ins segir að verið sé að blekkja almenn­ing varð­andi alvar­leika COVID-19 kór­óna­veirunnar. Hún heldur því fram að dán­ar­tíðni sé tólf sinnum hærri en upp­lýs­ingar Alþjóða heil­briðgð­is­mála­stofn­un­ar­innar segja til um.

Inga Sæland fer með ósannindi um kórónaveiruna
Segir ósatt Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, heldur því fram að dán­ar­tíðni af völdum COVID-19 kór­óna­veirunnar sé 30 pró­sent. Tölur WHO segja að dán­ar­tíðnin sé 2,5 pró­sent.

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, fer með ósann­indi um dán­ar­tíðni af völdum COVID-19 kór­óna­veirunnar í grein í Morg­un­blað­inu. Í grein­inni heldur Inga því fram að dán­ar­tíðni að völdum veirunnar sé tólf sinnum hærri en raun ber vitni og segir hún einnig að verið sé að blekkja almenn­ing þegar komi að upp­lýs­ingum um veiruna. Þá vill hún að land­inu verði lokað fyrir ferða­fólki sem komi frá svæðum þar sem veiru­sýk­ingin geysar.

Í grein­inni rekur Inga þá skoðun sína að íslensk stjórn­völd geri allt of lítið til að minnka hætt­una á að veiran ber­ist hingað til lands. Veiran fari hratt yfir segir Inga og bætir því við að sótt­varn­ar­læknir hafi sagt að ekki væri spurn­ing um hvort heldur hvenær veran bær­ist hingað til lands. Raunin er þó sú að ofmælt er að veiran fari hratt yfir. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti allra smita hefur greinst í Kína sjálfu og veiran hefur í heild greinst í 28 löndum til þessa, og milli dag­anna 11. og 12. febr­úar hafði veikin ekki komið upp í nýju landi. Sem dæmi má nefna að aðild­ar­ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna eru 193. Um helm­ingur land­anna eru Asíuríki, nágranna­ríki Kína þar sem miklar sam­göngur eru á milli. Veiran hefur greinst í níu Evr­ópu­ríkjum en hefur ekki breiðst út í þeim svo miklu nemur. Þá hafur enn sem komið er aðeins orðið eitt dauðs­fall af völdum veirunnar utan Kína, á Fil­ipps­eyjum.

Vill loka landinu

Inga segir rík­is­stjórn­ina sitja með hendur í skauti og bíða þess að veira ber­ist hingað til lands. „Af hverju er ekki gripið til varna? Hvers vegna í ósköp­unum lokum við ekki alger­lega á flæði ferða­manna frá við­ur­kenndum sýktum svæðum?“ spyr Inga.

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir hefur hins vegar þegar svarað því til að ekki sé til staðar tækni eða heim­ildir á Kefla­vík­ur­flug­velli til að finna út hvar fólk hafi verið áður en það kom til lands­ins, það er hvort það hafi verið í Kína síð­asta hálfan mán­uð­inn, og vísar hann til bæði lög­reglu og stjórn­enda Kefla­vík­ur­flug­vallar hvað það varðar.

Engu að síður er það skoðun Ingu að loka eigi land­inu og segir hún að við höfum nú val um að þola tíma­bundin óþæg­indi vegna rask­ana á ferðum fólks til lands­ins „eða að þjóð­fé­lagið hér nán­ast lamist ef veiran berst hingað og breið­ist út“. Utan Kína hefur sem COVID-19 veiran sem fyrr segir ekki valdið víð­tækum óþæg­indum enn sem komið er og þjóð­fé­lög eru ekki lömuð.

Dánartíðni 2,5 prósent en ekki 30 prósent

Þá segir Inga að mikil alvara sé á ferðum enda „dán­ar­tíðni þessa far­ald­urs er miklu mun hærri en okkur er talin trú um. Af þeim sem hafa gengið í gegnum þessa hrylli­legu veiru­sýk­ingu hafa ríf­lega 30% dáið“.

„Af þeim sem hafa gengið í gegnum þessa hrylli­legu veiru­sýk­ingu hafa ríf­lega 30% dáið“

Inga færir ekki frek­ari rök fyrir þessum full­yrð­ingum en þær stang­ast á við allar opin­berar upp­lýs­ingar sem fram hafa komið, eins og frá Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni, WHO. Til­fellið er að því fer fjarri að dán­ar­tíðni af völdum COVId-19 kór­óna­veirunnar sé 30 pró­sent. 12. febr­úar höfðu 1.115 ein­stak­lingar lát­ist af völdum veirunnar. Dán­ar­tíðni af völdum hennar er því um 2,5 pró­sent, eða tólf sinnum lægri en Inga heldur rang­lega fram, en talið er lík­legt að fleiri hafi fengið væg­ari útgáfu veirunnar en til­kynnt hefur verið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár