Heilbrigðiskerfið sjúkdómsgreint: Niðurskurður býr til meiri kostnað

For­stjóri Land­spít­al­ans kallar eftir þjóð­ar­átaki í heil­brigð­is­málum. Sjúkra­sjóðir stétt­ar­fé­lag­anna taka í síauknum mæli á sig verk­efni sem heil­brigð­is­kerf­inu ber að sinna sam­kvæmt lögum og heil­brigð­is­kerfið býður upp á of margar gagns­lausar með­ferðir. Þetta er meðal þess sem fram kom á fundi um fjár­mögnun heil­brigð­is­kerf­is­ins, sem hald­inn var á vegum ASÍ og BSRB í morgun.

Heilbrigðiskerfið sjúkdómsgreint: Niðurskurður býr til meiri kostnað
Á Land­spít­ala Mynd: Heiða Helgadóttir

Sjúkra­sjóðir stétt­ar­fé­lag­anna taka í síauknum mæli á sig verk­efni sem heil­brigð­is­kerf­inu ber að sinna sam­kvæmt lögum. Á sama tíma og fjár­magn til Land­spít­ala var skorið niður jókst kostn­aður rík­is­ins vegna þjón­ustu einka­rek­inna lækna­stofa. 20-40% af kostn­aði við heil­brigð­is­kerfið fer í súg­inn og heil­brigð­is­kerfið býður upp á of margar gagns­lausar með­ferðir. For­stjóri Land­spít­ala kallar eftir þjóð­ar­átaki í heil­brigð­is­málum.

Þetta er meðal þess sem fram kom á fundi um fjár­mögnun heil­brigð­is­kerf­is­ins, sem hald­inn var á vegum ASÍ og BSRB í morgun.

Drífa SnædalSagði að sjúkra­sjóðir stétt­ar­fé­lag­anna tækju í síauknum mæli á sig kostnað, sem ætti að vera á ábyrgð hins opin­bera.

Drífa Snædal for­seti ASÍ minnt­ist þess í máli sínu að þegar Síminn var seldur hafi átt að byggja hátækni­sjúkra­hús fyrir sölu­and­virðið.

„Þeir pen­ingar hafa vænt­an­lega gufað upp í „money-hea­ven,“ sagði Drífa. „Hér á landi eru marg­falt fleiri sem veigra sér við að sækja sér heil­brigð­is­þjón­ustu en í lönd­unum sem við berum okkur saman við, sagði hún. Ástæðan væri tekju­tengd og það gæti haft alvar­legar afleið­ingar að sinna ekki for­vörnum.

„Þeir pen­ingar hafa vænt­an­lega gufað upp í „money-hea­ven““

Drífa sagði að sjúkra­sjóðir stétt­ar­fé­lag­anna tækju sífellt meiri þátt í kostn­aði sem ætti í raun að vera á ábyrgð hins opin­bera. „Sjóð­irnir eru í síauknum mæli að taka á sig ábyrgð heil­brigð­is­kerf­is­ins,“ sagði Drífa sem sagði þetta slæma þróun og nefndi sem dæmi að margir slíkir sjóðir halda úti íbúðum í borg­inni fyrir lang­veika félags­menn sína.

Einkarekstur sprettur upp eins og gorkúla

Eftir kreppu dró úr opin­berri fjár­mögnun til heilsu­gæsl­unnar og á sama tíma jókst fjár­magn til einka­rek­inna lækna­stofa. Þetta kom fram í máli Birgis Jak­obs­sonar aðstoð­ar­manns Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra. „Þegar Land­spít­al­inn dregur niður er eins og spretti upp gor­kúla fyrir utan þetta sem veldur því að sparn­að­ur­inn er tak­mark­aður,“ sagði Birgir.

Birgir Jak­obs­sonVið sátum uppi með mjög brota­kennt kerfi. Sér­fræð­ingar leit­uðu út fyrir Land­spít­al­ann til að sjá um sjúk­linga sem áður höfðu verið á spít­al­anum, sagði Birgir.

„Við sátum uppi með mjög brota­kennt kerfi. Sér­fræð­ingar leit­uðu út fyrir Land­spít­al­ann til að sjá um sjúk­linga sem áður höfðu verið á spít­al­anum. Þar fengu þeir oft betri vinnu­að­stöðu, betri vinnu­tíma og hærri tekjur. Land­spít­al­inn fór að veita minni þjón­ustu sem þýddi að þeir sjúk­lingar sem þurftu á þjón­ustu margra starfs­stétta að halda fengu verri þjón­ustu, því þeir þurftu að sækja hana á margar starfs­stöðvar úti í bæ. Fram­boðið af sér­fræð­ingum hefur stýrt þess­ari þróun, ekki þarfir sjúk­linga,“ sagði Birgir. Hann sagði það vera yfir­lýsta stefnu ráð­herra að snúa þess­ari þróun við. 

Jafnmikil aukning til LSH og sérfræðilækna

Birgir fór yfir breyt­ingar á rík­is­fram­lagi til heil­brigð­is­mála á milli áranna 2017 - 2020. Framlög til Land­spít­ala hafa auk­ist um 11% á þessu tíma­bili og sama aukn­ing hefur verið á fram­lögum til sér­greina­lækna. Aukn­ingin til heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur verið 24%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár