Kristján Þór vill ekki skilgreina samband sitt við Þorstein Má

Kristján Þór Júlíusson sjávar­útvegs­ráðherra hefur í gegnum tíðina ekki viljað skilgreina samband sitt og Þorsteins Más Baldvins­sonar sem samband vina. Hæfi hans til að taka ákvarðanir sem með einum eða öðrum hætti snerta Samherja kunna að byggjast á þessari skil­grein­ingu.

Eðli sambandsins
Eðli sam­bands­ins Eðli sam­bands þeirra Kristján Þórs Júl­í­us­sonar og Þor­steins Más Bald­vins­sonar skiptir máli þegar hæfi hans gagn­vart Samherja er metið. Þekkjast þeir, eru þeir kunn­ingar eða eru þeir vinir eða jafn­vel nánir vinir. Mynd: Thorhallur Jonsson

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherrra hefur ekki fengist til þess í gegnum tíðina að skilgreina samband sitt við Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja, sérstak­lega.

Í lok árs 2017, og byrjun árs 2018, eftir að Kristján Þór hafði verið settur í embætti sjávar­útvegs­ráðherra, spurði Stundin hann að því hvers eðlis samband hans og Þorsteins Más væri. Kristján Þór svaraði ekki þessari spurningu. Þorsteinn Már Baldvinsson vildi heldur ekki svara spurningum um eðli sambands síns við Kristján Þór en skilgreiningin á slíku sambandi getur valdið vanhæfi samkvæmt því sem lesa má út úr bók Páls Hreins­sonar um hæfis­reglur stjórnsýslu­laga. 

Kristján Þór sagði frá því á Facebook-síðu sinni þann 12. desember 2017 að hann hefði þekkt Þorstein Má í áratugi. „Í því samhengi er mér ljúft og skylt að upplýsa að við Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, höfum þekkst síðan við vorum ungir menn.“

Í svörum sínum til Stundarinnar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli siðferðis­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undrast þögn íslenskra stjórn­valda um þá staðreynd að stærsta spill­ing­armál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir tilstilli íslensks fyrir­tækis. Spyr hvort hundrað milljóna styrkur Orkusjóðs sé ríkis­styrkt spilling og sendir forsætis­ráðherra opið bréf og óskar liðsinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sakaður um stórfelld skatta­laga- og gjaldeyris­brot í Namibíu og fram­salskrafa væntanleg

Ríkis­saksóknari Namibíu er enn ákveðinn í því að óska eftir framsali þriggja stjórn­enda Samherja­félaga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjaldeyris­lögum muni mögulega bætast við sakar­efnin á hendur þeim. Stórfelld skatta­lagabrot Samherja­félaga sögð til rann­sóknar. Samherja­maður segir íslensk yfirvöld þegar hafa neitað að framselja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­ríkis­ráðherra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Samherja­málið við íslenska ráðherra og aðstoðar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér forseta­embættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arftaki formanns flokksins, sitjandi forseta sem hyggst setjast í helgan stein. Flokkurinn nýtur slíks yfirburðar­fylgis að innan­flokks­kosningin er sögð raun­verulegt forseta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­ánsson, uppljóstrari í Samherja­málinu, er sáttur við gang rann­sóknarinnar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagnrýnir þó aðgerðar­leysi yfirvalda við því þegar Samherja­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í viðbrögðum Samherja­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum liðist.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár