Svandís boðar frumvarp um tengda aðila í sjávarútvegi á næsta ári

Samkvæmt lögum mega tengdir aðilar í sjáv­ar­út­vegi ekki halda á meira en tólf pró­sent af úthlut­uðum kvóta á hverjum tíma. Skiptar skoð­anir eru um hvort mikil sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi sé í sam­ræmi við þetta þak.

Svandís Svavarsdóttir er matvælaráðherra og fer með málefni sjávarútvegs.
Svandís Svav­ars­dóttir er mat­væla­ráð­herra og fer með mál­efni sjáv­ar­út­vegs. Mynd: Eyþór Árnason

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra áformar að koma á lagg­irnar heild­stæðu við­ur­laga­kerfi vegna brota á helstu lögum á sviði fisk­veiði­stjórnar. Auk þess áformar hún að leggja til að hug­takið raun­veru­leg yfir­ráð við fram­kvæmd reglna um hámarks­afla­hlut­deild og tengdra aðila verði afmarkað nánar.

Þetta kemur fram í skjölum sem lögð hafa verið fram til sam­ráðs í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Þar segir að laga­frum­varp verði lagt fram á árinu 2023.

Ekki er til­greint í hverju breyt­ing­arnar á við­ur­laga­kerfi eigi að fel­ast né hvernig ráð­herr­ann hefur hug á því að afmarka hug­takið nánar. Í skjal­inu segir þó að áformin komi ekki inn á svið stjórn­ar­skrár og þjóð­rétt­ar­skuld­bind­inga. „Tak­mark­anir á eign­ar­rétti koma inn á svið stjórn­ar­skrár en ekki er áformað að koma fram með nýjar tak­mark­anir heldur vinna með tak­mark­anir sem fyrir eru í lögum um stjórn fisk­veiða og stuðla að skil­virkara eft­ir­liti og fram­kvæmd.“

Gert er ráð fyrir að áformin muni leiða af sér fjár­hags­á­hrif fyrir rík­is­sjóð. Þau hafa þó ekki verið metin enn sem komið er. Um er að ræða hugs­an­lega auknar tekjur hvað varðar inn­heimtu á sektum og þjón­ustu­gjöldum sem myndu leggj­ast á útgerð­ar­fyr­ir­tæki. Auk þess gæti auk­inn kostn­aður fallið til vegna skil­virkara eft­ir­lits. Í skjöl­unum stendur að sá sam­fé­lags­legi ávinn­ingur sem sé af breyt­ing­unum feli í sér „öfl­ugra eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni“ sem muni hafa “jákvæð sam­fé­lags­leg áhrif til lengri tíma litið.“

Þegar drög að laga­frum­varpi liggja fyrir verða þau birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Svört skýrsla Ríkisendurskoðunar

Í des­em­ber 2018 skil­aði Rík­is­end­ur­skoðun stjórn­sýslu­út­tekt um eft­ir­lits­hlut­verk Fiski­stofu. Skýrslan var gerð opin­ber í jan­úar 2019. Þar fékk stofn­unin tölu­vert bága umsögn fyrir fram­kvæmd þess eft­ir­lits sem henni er ætlað að hafa með hönd­um. Eft­ir­lit með brott­kasti var til dæmis sagt afar tak­mark­að, veik­burða og ómark­visst. Þá var eft­ir­lit með vigtun sjáv­ar­afla einnig gagn­rýnt. Þegar hefur verið brugð­ist við, að hluta, með því að breyta lögum þannig að hægt sé að hafa eft­ir­lit með brott­kasti með drónum.

[adspot]Slíkt eft­ir­lit hófst í byrjun árs í fyrra og í apríl hafði það þegar leitt til þess að brott­kast hafði sést hjá um 40 pró­sent báta sem flogið hafi verið yfir á dróna. Í svari Svan­dísar við fyr­ir­spurn á Alþingi um þessi mál kom þó einnig fram að eft­ir­litið næði að mestu til lít­illa báta. Lítill hluti fluga hefði farið fram yfir stærri skipum, í eigu stór­út­gerða, sem stundi veiði fjarri landi.

Frumvarp lagt fram í fyrra sem var ekki afgreitt

Annað atriði sem veru­legar athuga­semdir voru gerðar við í skýrsl­unni, og vakti mikla athygli, var að Fiski­stofa kann­aði ekki hvort yfir­ráð tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi yfir afla­hlut­deild­um, eða kvóta, væru í sam­ræmi við lög.

Umrædd lög eru skýr. Þau segja að eng­inn hópur tengdra aðila megi halda á meira en tólf pró­sent af heild­ar­afla. Þau mörk eiga að koma í veg fyrir of mikla sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi á meðal þeirra fyr­ir­tæki sem fá að vera vörslu­að­ili fiski­mið­anna, sem eru sam­kvæmt lögum þó ekki eign þeirra heldur þjóð­ar­inn­ar.

Í skýrsl­unni var meðal ann­ars lagt til að ráð­ast í end­ur­skoðun á lögum um stjórn fisk­veiða sem snúa að yfir­ráðum yfir afla­heim­ildum og ákvæðum sem fjalla um tengsl aðila „svo tryggja megi mark­visst eft­ir­lit með sam­­­þjöppun afla­heim­ilda“.

í kjöl­farið var skipuð verk­efna­stjórn sem hafði meðal ann­ars það verk­efni að tryggja mark­visst eft­ir­lit með sam­þjöppun afla­heim­ilda. Hún skil­aði skýrslu í júní 2020 og Kristján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, lagði fram frum­varp í apríl í fyrra sem sagt var byggja á þeirri vinnu. Í grein­ar­gerð þess sagði að meg­in­til­gangur þess væri að koma á heild­stæðu við­ur­laga­kerfi vegna brota á lögum á sviði fisk­veiði­stjórn­ar, að heim­ildir Fiski­stofu til að sinna raf­rænu eft­ir­liti yrðu styrktar og að hug­takið raun­veru­leg yfir­ráð við fram­kvæmd reglna um hámarks­afla­hlut­deild yrði afmarkað bet­ur. Það frum­varp náði ekki fram að ganga.

Í þing­mála­skrá nýrrar rík­is­stjórn­ar kom fram að nýr ráð­herra mála­flokks­ins, Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, ætl­aði að leggja það fram að nýju í jan­úar 2022. Af því varð ekki en núna hefur hún boðað að frum­varp verði lagt fram á næsta ári.

Mikil samþjöppun á fáum árum

Mikil sam­­­­­þjöppun hefur átt sér stað í sjá­v­­­­­­ar­út­­­­­­­­­vegi á Íslandi á und­an­­­­­förnum ára­tug­um, eftir að fram­­­­­sal kvóta var gefið frjálst og sér­­­­­stak­­­­­lega eftir að heim­ilt var að veð­­­­­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lán­um, þótt útgerð­­­­­ar­­­­­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóð­in. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

Haustið 2020 héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins með sam­an­lagt á 53 pró­­­sent af úthlut­uðum kvóta, en Kjarn­inn greindi frá því í nóv­­em­ber í fyrra að það hlut­­­fall væri komið upp í rúm­­­lega 67 pró­­­sent. Sam­­þjöpp­unin jókst svo enn í sumar við kaup Síld­­ar­vinnsl­unnar á Vísi.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur lengi haft til skoð­unar mögu­leg raun­veru­leg yfir­ráð yfir stærstu blokk­inni í íslenskum sjáv­ar­út­vegi, þeirri sem hverf­ist utan um Samherja. Eft­ir­litið birti frum­mat í febr­úar 2021 þar sem nið­ur­staðan var sú vís­bend­ingar væru um að Samherji og tengd félög væru með raun­veru­leg yfir­ráð yfir Síld­ar­vinnsl­unni og að sam­starf væri á milli útgerða í blokk­inni.

Kjarninn greindi frá því um miðjan júlí að engin ákvörðun hefði enn verið tekin um hvort ráð­ist yrði í form­lega rann­sókn á yfir­ráðum Samherja og tengdra aðila yfir Síld­ar­vinnsl­unni og sam­starfi þeirra á milli.

[links]Stærstu eig­endur Síld­­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji og félagið Kjálka­­­nes, sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík. Þar er meðal ann­­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­­son, sem var um tíma annar for­­­stjóri Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­skyld­u­­bönd­um, meðal ann­ars systk­ini hans. Auk þess á Kald­bak­­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á hlut í Síld­­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­­ur.

Að mati eft­ir­lits­ins voru veru­­­leg tengsl milli stórra hlut­hafa í Síld­­­ar­vinnsl­unni og þrír af fimm stjórn­­­­­ar­­­mönnum í Síld­­­ar­vinnsl­unni á þeim tíma voru skip­aðir af eða tengdir Sam­herja og Kjálka­­­nesi. Einn þeirra er Þor­­­steinn Már Bald­vins­­­son, for­­­stjóri Sam­herja, sem er stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Síld­­­ar­vinnsl­unn­­­ar.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, var í fyrra­haust með fjórðu mestu afla­hlut­­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­­sögu allra sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 8,09 pró­­­­sent. ­Út­­­­­­­gerð­­­­­­­­ar­­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­­sent eigu Sam­herja, hélt svo á 1,1 pró­­­­­­­­sent kvót­ans.

Gjög­­ur, sem er í eigu sömu aðila og eiga Kjálka­­nes, hélt á 2,5 pró­­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­­um.

Þessir aðil­­­ar: Síld­­­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­­­ur, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur mög­u­­­legt að séu tengd­ir, héldu því sam­tals á 22,14 pró­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta í nóv­em­ber í fyrra.Í sumar bætt­ist 2,16 pró­sent kvóti Vísis við og sam­an­lagður úthlut­aður kvóti til Sam­herja og mögu­legra tengdra aðila fór upp í 24,3 pró­sent, eða næstum fjórð­ung allra úthlut­aðra afla­heim­ilda á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár