Karlar og minna menntaðir hrífast af Miðflokknum

Flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar er á mjög svip­uðu róli nú í könn­unum og hann var í síð­ustu kosn­ingum. Hann á erfitt upp­dráttar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hjá ungu fólki en er sterkur á lands­byggð­inni.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Um miðjan sept­em­ber 2017 sprakk rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar eftir nokk­urra mán­aða setu og boðað var til nýrra kosn­ingar. Þegar það gerð­ist hafði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son verið í póli­tískri eyði­merk­ur­göngu í næstum eitt og hálft ár, eða frá því að hann sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra vegna Wintris-máls­ins í apríl ári áður.

[box]Hann tap­aði svo for­manns­slag í Fram­sókn­ar­flokknum þá um haustið en ákvað að bjóða sig samt sem áður fram fyrir hönd þess flokks í kosn­ing­unum í októ­ber 2016.

Öllum sem með fylgd­ust átt­uðu sig þó á að engin ró var innan Fram­sókn­ar­flokks­ins. Í maí 2017 stofn­aði Sig­mundur Davíð Fram­fara­fé­lagið utan um sína póli­tíska stefnu og um tvö hund­ruð manns, þar af margir áhrifa­menn innan Fram­sóknar, mættu á stofn­fund þess. Flestir töldu þó að Sig­mundur Davíð myndi gera eina loka­til­raun til að end­ur­heimta for­mennsku í sínum gamla flokki á flokks­þingi sem áætlað var í byrjun árs 2018.

Nýjar kosn­ingar haustið 2017 breyttu þeim áformum og níu dögum eftir að sitj­andi rík­is­stjórn sprakk vegna upp­reist-æru máls­ins sagði Sig­mundur Davíð sig úr Fram­sókn­ar­flokknum og stofn­aði nýtt fram­boð, sem síðar fékk nafnið Mið­flokk­ur­inn.

Mikill árangur á skömmum tíma

Á skömmum tíma tókst að manna alla lista og ná besta árangri sem nýtt stjórn­mála­afl hefur nokkru sinni náð í fyrstu Alþing­is­kosn­ingum sínum seint í októ­ber sama ár, rúmum mán­uði eftir að Sig­mundur Davíð sagði sig úr Framsókn. Alls fékk flokk­ur­inn 10,9 pró­sent atkvæða og sjö þing­menn. Það fjölg­aði síðan um tvo í þing­flokknum eftir Klaust­ur­málið svo­kall­aða, þegar tveir brottreknir þing­menn úr Flokki fólks­ins, Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son, gengu til liðs við hina sem sátu með þeim á sum­bli þetta nóv­em­berkvöld 2018.

[adspot]Mið­flokknum gekk líka vel í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018 og er með alls tíu sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa. Þar af er einn í Reykja­vík, Vigdís Hauks­dóttir sem sæk­ist eftir því að verða næsti vara­for­maður flokks­ins.

Minnst fylgi á höfuðborgarsvæðinu

Enginn flokkur hefur sveifl­ast jafn mikið í fylgi og Mið­flokk­ur­inn á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili sam­kvæmt könn­unum MMR. Eftir að Klaust­ur­málið komst í hámæli fór fylgi flokks­ins niður í 5,9 pró­sent en tæpu ári síðan, í kjöl­far lang­vinns mál­þófs til að tefja fyrir afgreiðslu þriðja orku­pakk­ans svo­kall­aða, náði það sínum hæstu hæðum og mæld­ist 16,9 pró­sent. Mikil fylgni er milli breyt­inga á stuðn­ingi við Mið­flokk­inn ann­ars­vegar og Sjálf­stæð­is­flokk­inn hins vegar. Þegar Mið­flokk­ur­inn hækkar lækkar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, og öfugt. Þetta bendir til þess að flokk­arnir séu að fiska í sömu tjörnum eftir kjós­endum.

Und­an­farið hefur fylgið þó verið rétt undir kjör­fylgi. Í síð­ustu tveimur könn­unum MMR hefur með­al­tals­fylgið til að mynda mælst 10,3 pró­sent. Og mik­ill stöð­ug­leiki er í bak­grunns­breytum kjós­enda flokks­ins.

Þegar fylgið er borið saman við það sem mæld­ist í tveimur könn­unum MMR í kringum síð­ustu kosn­ingar, þar sem nið­ur­staðan var nákvæm­lega sú sama og í kosn­ing­unum 2017 (10,9 pró­sent), sést að Mið­flokknum gengur heldur verr að ná til yngstu kjós­end­anna nú en þá. Hjá þeim kjós­endum sem eru undir þrí­tugu mælist stuðn­ingur við flokk­inn nú 6,1 pró­sent, en var 9,2 pró­sent fyrir rúmum þremur árum. Stuðn­ingur í öðrum ald­urs­hópum er hins vegar meira og minna á svip­uðu róli, á milli tíu til tólf pró­sent.

Höf­uð­borg­ar­svæðið er áfram sem áður það land­svæði þar sem flokk­ur­inn á erf­ið­ast upp­dráttar en fylgi hans þar mælist 7,1 pró­sent. Til sam­an­burðar mælist það 16,4 til 17,8 pró­sent á Norð­ur­landi, Aust­ur­landi og Suð­ur­landi.

Menntun og kyn ráðandi breytur

Stuðn­ingur við Mið­flokk­inn er mjög mis­mun­andi eftir mennt­un­ar­stigi. Flokk­ur­inn nýtur mestra vin­sælda hjá þeim sem hafa mest lokið grunn­skóla­prófi, en þar mælist fylgi hans 18,4 pró­sent.

[links]Hjá þeim sem hafa lokið háskóla­prófi mælist fylgið hins vegar lítið, eða 5,2 pró­sent.

Kyn er líka ráð­andi breyta þegar kemur að stuðn­ingi við Mið­flokk­inn. Hann er mun vin­sælli hjá körlum en konum. Alls segj­ast 14 pró­sent karla að þeir myndu kjósa flokk­inn í dag en ein­ungis 5,5 pró­sent kvenna. Stuðn­ingur á meðal karla hefur auk­ist lít­il­lega frá 2017 en stuðn­ingur á meðal kvenna hefur dreg­ist saman um þriðj­ung og er 5,5 pró­sent.

Tekjur virð­ast hins vegar ekki skipta máli þegar kjós­endur eru að ákveða hvort Mið­flokk­ur­inn höfði til þeirra. Þannig segj­ast 10,2 pró­sent þeirra sem eru með undir 400 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur á mán­uði að þeir myndu kjósa flokk­inn í dag en níu pró­sent þeirra sem eru með yfir 1,2 millj­ónir króna á mán­uði í tekjur. Stuðn­ingur hjá þeim tekju­hópum sem eru þar á milli er mjög svip­aður, sveifl­ast frá 9,0 í 10,4 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár