Samfylkingin mælist með yfir 20 prósent fylgi og hefur ekki mælst stærri í áratug

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur rúm­lega tvö­fald­ast frá því að kosið var síð­asta fyrir rúmu ári síðan. Flokk­ur­inn mælist nú með 21,1 pró­sent fylgi hjá Gallup. Framsókn hefur ekki mælst minni á kjör­tíma­bil­inu og Vinstri græn eru í miklum öldu­dal.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Eyþór Árnason

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist nú 21,1 pró­sent sam­kvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Það eykst 4,5 pró­sentu­stig milli mán­aða og hefur rúm­lega tvö­fald­ast frá síð­ustu kosn­ingum, en þá fékk flokk­ur­inn 9,9 pró­sent atkvæða. Þetta er í fyrsta sinn sem fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist yfir 20 pró­sent í könnun Gallup frá því í lok árs 2014, þegar flokk­ur­inn sat síð­ast í rík­is­stjórn og mesta fylgi sem hann hefur mælst með í rúm­lega tíu ár, eða frá því í októ­ber 2012. Þá sat Sam­fylk­ingin í rík­is­stjórn með Vinstri grænum og var undir for­mennsku Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur.

Þetta er þriðja könn­unin á skömmum tíma sem sýnir mikla fylg­is­aukn­ingu Sam­fylk­ing­ar­innar. Í nóv­em­ber birt­ust kann­anir frá bæði Maskínu og Prósent sem sýndu svip­aða stöðu. Hvorug þeirra sýndi fylgið þó yfir 20 pró­sent­unum.

Helsta breyt­ingin sem orðið hefur á högum Sam­fylk­ing­ar­innar á allra síð­ustu vikum er kosn­ing Kristrúnar Frosta­dóttur sem for­manns flokks­ins, en það gerð­ist 28. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Framsókn ekki minni á kjörtímabilinu

Á sama tíma mælist fylgi Vinstri grænna nálægt því minnsta sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með hjá Gallup, eða 7,5 pró­sent. Minnsta fylgið mæld­ist í sumar, en það var 7,2 pró­sent.

[adspot]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins og mælist með 24,1 pró­sent fylgi. Það er aðeins minna en í síð­asta mán­uði og rétt undir kjör­fylgi, sem var 24,4 pró­sent.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með 12,2 pró­sent fylgi sem er minnsta fylgi sem hann hefur mælst með á kjör­tíma­bil­inu.

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist nú 43,5 pró­sent. Það fylgi myndi ekki duga fyrir meiri­hluta á þingi. Flokk­arnir þrír fengu 54,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2021 og því hafa þeir tapað 10,9 pró­sentu­stigum af fylgi á fyrsta ári kjör­tíma­bils­ins. Það er minna en allt það fylgi sem Sam­fylk­ingin hefur bætt við sig á því rúma ári sem liðið er frá síð­ustu kosn­ingum, en það er 11,2 pró­sent.

Flokkur fólksins ekki inni

Píratar mæl­ast jafn stórir og Fram­sókn­ar­flokkur með 12,2 pró­sent og hafa bætt við sig 3,6 pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu. Viðreisn mælist tæpu pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi með 7,4 pró­senta fylgi.

Þrír minnstu flokk­arnir sem mæl­ast með fylgi eru Mið­flokk­ur­inn með 5,6 pró­sent, Sós­í­alista­flokk­ur­inn með 5,2 pró­sent og Flokkur fólks­ins með 4,5 pró­sent. Sá síð­ast­nefndi hefur tapað miklu á kjör­tíma­bil­inu og næði varla inn með það fylgi sem hann mælist með nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár