Samfylkingin á miklu skriði hjá konum og yngstu kjósendunum

Degi fyrir kosn­ing­arnar 2016 sögð­ust eitt pró­sent kjós­enda undir þrí­tugu ætla að kjósa Sam­fylk­ing­una. Nú mælist stuðn­ingur við flokk­inn hjá þeim ald­urs­hópi 19,3 pró­sent. Bætt staða Sam­fylk­ing­ar­innar þar er lyk­il­breyta í auknu fylgi flokks­ins.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Aðsend

Sam­fylk­ingin, flokkur jafn­að­ar­manna, hefur oft­ast verið að mæl­ast næst stærsti flokkur lands­ins í könn­unum MMR á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili.

[box]Með­al­tals­fylgi flokks­ins í síð­ustu tveimur könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið 15,9 pró­sent, sem er umtals­vert hærra en þau 12,1 pró­sent sem Sam­fylk­ingin fékk þegar talið var upp úr kjör­köss­unum 2017. Lægst seig fylgið í 11,5 pró­sent í febr­úar 2018 en hæst fór það í 19,8 pró­sent í sept­em­ber sama ár.

Þessi staða er ansi langt frá þeirri sem var á upp­hafs­árum þess­arar ætl­uðu breið­fylk­ingar vinstri­manna. Í þrennum kosn­ingum á árunum 2003 til 2009 var flokk­ur­inn með um eða yfir 30 pró­sent fylgi. Eftir rík­is­stjórn­ar­setu eftir banka­hrunið hrundi fylgið niður í 12,9 pró­sent 2013 og svo í 5,7 pró­sent 2016. Sam­fylk­ingin var næstum dottin út af þingi, en hékk inni með einn kjör­dæma­kjör­inn þing­mann.

Að bæta við sig rúm­lega tíu pró­sentu­stigum á þeim fjórum árum sem liðin eru frá þeim botni er því ákveð­inn varn­ar­sigur.

Úr einu prósenti í tæplega tuttugu prósent

Sam­fylk­ingin getur verið ánægð með hvernig henni er að takast að ná til yngstu kjós­enda. Í könnun sem MMR birti dag­inn fyrir kosn­ing­arnar 2016 mæld­ist Sam­fylk­ingin með eitt pró­sent fylgi í ald­urs­hópnum 18 til 29 ára. Í kringum síð­ustu kosn­ingar, sem voru ári síðar, var fylgið hjá þeim hópi orðið heldur skap­legra, eða 12,3 pró­sent.

Í dag er Sam­fylk­ingin í öðru sæti yfir þá flokka sem höfða mest til þessa hóps með 19,3 pró­sent fylgi. Einungis Píratar mæl­ast betur hjá yngsta ald­urs­hópnum með 24,9 pró­sent stuðn­ing. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokkur lands­ins, hefur nán­ast staðið í stað í fylgi hjá þessum hópi (18,3 pró­sent) á kjör­tíma­bil­inu, á sama tíma og Sam­fylk­ingin hefur bætt við sig sjö pró­sentu­stigum.

Senni­legt verður að telj­ast að Sam­fylk­ingin sé að taka umtals­vert fylgi af Vinstri grænum hjá yngstu kjós­end­unum, enda hefur stuðn­ingur við þann flokk hjá hópnum fallið um 12,4 pró­sentu­stig á kjör­tíma­bil­inu.

Þrátt fyrir þetta þá er Sam­fylk­ingin að mæl­ast með meira fylgi hjá 60 ára og eldri (18,5 pró­sent) en þeim kjós­endum sem eru undir því ald­urs­marki (15,2 pró­sent).

Sterkust á höfuðborgarsvæðinu

Höf­uð­borg­ar­svæðið er áfram sem áður sterkasta vígi Sam­fylk­ing­ar­innar, en þar mælist fylgi flokks­ins 18,4 pró­sent.

[adspot]Athygl­is­vert er, þegar fylg­is­þróun Sam­fylk­ing­ar­innar er borin saman við með­al­tal kann­anna MMR fyrir og eftir síð­ustu kosn­ingar, að stuðn­ing við flokk­inn hefur dreg­ist saman á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum (farið úr 15,7 í 6,3 pró­sent) en auk­ist veru­lega á Aust­ur­landi (farið úr 8,3 í 16,8 pró­sent) og Norð­ur­landi (farið úr 9,9 í 15,4 pró­sent). Þau land­svæði til­heyra bæði að hluta til kjör­dæmi for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, Loga Ein­ars­sonar, sem leiðir lista flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Á Suð­ur­landi og Suð­ur­nesjum er fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar enn vel undir heild­ar­fylgi líkt og það var í kringum síð­ustu kosn­ingar, og mælist nú 8,6 pró­sent.

Flokkur sem höfðar til kvenna

Konur eru mun lík­legri en karlar til að kjósa Sam­fylk­ing­una. Ef konur myndu einar kjósa væri flokk­ur­inn með 21,4 pró­sent fylgi og mun­ur­inn á honum og Sjálf­stæð­is­flokknum væri ein­ungis 1,5 pró­sentu­stig. Ef karlar myndu einir kjósa fengi Sam­fylk­ingin 11,9 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag sæti ásamt Viðreisn í fjórða til fimmta sæti yfir stærstu flokka lands­ins. Staða Sam­fylk­ing­ar­innar hjá konum hefur styrkst umtals­vert frá síð­ustu kosn­ingum, um 4,6 pró­sentu­stig, á meðan að staða flokks­ins hjá körlum er nán­ast sú sama. Menntun og tekjur eru ekki afger­andi breytur hjá stuðn­ings­fólki Sam­fylk­ingar. Þannig mælist fylgi flokks­ins 17,7 pró­sent bæði hjá þeim sem hafa ein­ungis lokið grunn­skóla­námi og þeim sem hafa lokið háskóla­námi.

Stuðn­ingur við Sam­fylk­ing­una mælist sömu­leiðis nán­ast sá sami (18,3 og 18,6 pró­sent) hjá ann­ars vegar þeim sem eru með á bil­inu 400 til 799 þús­und krónur á mán­uði í heim­il­is­tekjur og hins vegar þeim sem eru með 1,2 millj­ónir króna eða meira í slíkar tekjur.

Vill í ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokks

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar hefur verið mjög skýr með það hvert hugur hans stefnir eftir næstu kosn­ingar, kom­ist flokk­ur­inn í þá stöðu að geta myndað rík­is­stjórn.

[links]Meg­in­á­hersla hans er að sú rík­is­stjórn inni­haldi ekki Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Í við­tali við Mann­líf í jan­úar í fyrra sagði Logi að hann vildi rík­­is­­stjórn með Við­reisn, Pírötum og Vinstri græn­­um. „Ég held að við gætum náð mjög mörgum skemmti­­­legum og góðum málum á dag­­­skrá ef við myndum mynda rík­­­is­­­stjórn frá miðju til vinstri þar sem Sam­­­fylk­ingin væri kjöl­­­fest­u­­­flokkur og við hefðum svo Við­reisn og Pírata öðrum megin við okkur og Vinstri græn hinum megin við okk­­­ur.“

Á flokks­stjórn­ar­fundi flokks­ins fyrir ári sagði Logi að lík­urnar á sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk væri engar og að framundan væri sögu­legt tæki­færi fyrir Sam­fylk­ing­una til að fylkja saman því sem hann kall­aði „umbóta­öfl­unum í land­inu“.

Í umræðum á Alþingi um stöð­una í stjórn­málum í byrjun árs og verk­efnin framundan, sem fór fram í jan­úar síð­ast­liðnum, sló hann svip­aðan streng.

Þar sagði hann að tími væri kom­inn til að hætta að láta Sjálf­stæð­is­flokk­inn enda­laust velja sér nýja dans­fé­laga eftir kosn­ingar og stjórna eftir eigin geð­þótta. „Nú er kom­inn tími sam­stilltr­ar, djarfrar og víð­sýnnar stjórn­ar, án Sjálf­stæð­is­flokks­ins - fyrir allt fólkið í land­inu og kom­andi kyn­slóð­ir. Stjórn sem leggur alla áherslu á rík­ara félags­legt rétt­læti og hefur á sama tíma meiri sköp­un­ar­kraft, fram­sýni og hug­rekki.“

Í sam­tali við Frétta­blaðið í sept­em­ber, vegna könn­unar sem Zenter hafði gert fyrir blaðið sem sýndi að eina leiðin til að mynda þriggja flokka rík­is­stjórn væri með aðkomu Sam­fylk­ingar og Sjálf­stæð­is­flokks, sagði Logi að það væri „ekki að fara ger­ast“. Sam­starf flokk­anna gerð­ist bara í sjón­varps­þátt­um, og vís­aði þar til þáttar­að­ar­innar „Ráð­herr­ann“ sem þá voru til sýn­ingar á RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kannanir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár