Stjórnarflokkarnir hafa tapað yfir fjórðungi fylgis síns og mælast langt frá meirihluta

Tvær kann­anir sem birtar voru í lok árs sýna að Sam­fylk­ingin og Píratar hafa bætt við sig 14 til 16 pró­sentu­stigum af fylgi það sem af er kjör­tíma­bili. Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Framsókn hafa á sama tíma tapað 13,6 til 14,3 pró­sentu­stigum.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur setið að völdum síðan seint á árinu 2017.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur setið að völdum síðan seint á árinu 2017. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír mæl­ast með 40 til 40,7 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi í tveimur könn­unum sem birtar voru í lok árs, ann­ars vegar frá Maskínu og hins vegar frá Prósent. Í kosn­ing­unum sem fram fóru haustið 2021 fengu Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn sam­tals 54,3 pró­sent fylgi og hafa því tapað rúmum fjórð­ungi þess á þeim 14 mán­uðum sem liðnir eru af kjör­tíma­bil­inu.

Samkvæmt könnun Maskínu tapa allir stjórn­ar­flokk­arnir fylgi og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem alla jafna mælist stærsti flokkur lands­ins, missir þá stöðu yfir til Sam­fylk­ing­ar­innar þótt mun­ur­inn sé sára­lít­ill og vel innan skekkju­marka. Fylgis­tap stjórn­ar­flokk­anna þriggja er á bil­inu 4,4 til 5,1 pró­sentu­stig, minnst hjá Sjálf­stæð­is­flokki en mest hjá Framsókn. Hlut­falls­lega tapa Vinstri græn þó mestu fylgi, en 38 pró­sent þess hefur snúið sér annað á kjör­tíma­bil­inu.

Í könnun Prósents er staðan aðeins önnur. Nið­ur­staða hennar er að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar litlu – rúmu pró­sentu­stigi frá síð­ustu kosn­ingum – en Vinstri græn tæp­lega helm­ingi síns fylgis og Framsókn tæp­lega 40 pró­sent. Flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra yrði næst minnsti flokk­ur­inn sem næði inn á þing, ef nið­ur­staða síð­ustu könn­unar Prósents kæmi upp úr kjör­köss­unum næst þegar kosið verður.

[adspot]Báðar kann­an­irnar sýna að rík­is­stjórnin myndi að öllum lík­indum kol­falla ef kosið yrði í dag. Samkvæmt Maskínu fengi hún 25 þing­menn en Prósent gefur henni tveimur fleiri, þar sem hún sýnir sjö flokka örugga inni á þingi með jöfn­un­ar­þing­menn en Maskína sýnir níu. Ef fjöldi atkvæða fellur niður dauður ýkir það þing­manna­fjölda þeirra sem ná þing­mönnum inn á Alþingi.

Samfylkingin tvöfaldast á rúmu ári

Þorri þess fylgis sem rjátl­ast hefur af stjórn­ar­flokk­unum hefur lent hjá tveimur stjórn­ar­and­stöðu­flokkum, Sam­fylk­ingu og Pírötum.

Sam­fylk­ingin bætir við sig fylgi milli mán­aða sam­kvæmt báðum könn­unum og mælist með 20,1 til 20,5 pró­sent fylgi. Það er rúm­lega tvö­falt meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í fyrra­haust, þegar 9,9 pró­sent lands­manna kusu flokk­inn. Í könnun Maskínu gerð­ist það einnig að Sam­fylk­ingin mæld­ist 0,1 pró­sentu­stigi stærri en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Mikil fylg­is­aukn­ing flokks­ins er til­komin í kjöl­far þess að Kristrún Frosta­dóttir var kjör­inn for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í haust. Samhliða for­manns­kjör­inu hefur Kristrún boðað nýjar áherslur hjá flokknum. Hægt er að lesa um þær í við­tali Kjarnans við hana hér.

Píratar mæl­ast líka með umtals­vert meira fylgi en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum, eða 12,5 til 14,3 pró­sent í stað þeirra 8,6 pró­senta sem kom upp úr kjör­köss­unum 25. sept­em­ber 2021. Fylg­is­aukn­ingin er 3,9 til 5,7 pró­sent.

Sam­an­lagt hefur fylgi Sam­fylk­ingar og Pírata auk­ist um 14,1 pró­sent sam­kvæmt Maskínu og um 16,3 pró­sent sam­kvæmt Prósent. Í síð­ar­nefndu könn­un­inni er það ekki fjarri sam­eig­in­legu fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja. Sam­fylk­ingin og Píratar mæl­ast þar með 34,8 pró­sent fylgi en stjórn­ar­flokk­arnir þrír mæl­ast með 40,3 pró­sent.

[adspot]Ef Viðreisn, sem hefur dalað í fylgi frá síð­ustu kosn­ingum sam­kvæmt báðum könn­unum, yrði bætt við eru þessir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar, hin svo­kall­aða frjáls­lynda miðja, með meira fylgi en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir sam­kvæmt könnun Prósents.

Misvísandi mælingar

Flokkur fólks­ins fær mjög mis­vísandi nið­ur­stöðu út úr könn­unum tveimur Í könnun Prósents er fylgi flokks­ins rétt við tíu pró­sent, og meira en í síð­ustu kosn­ingum, en í könnun Maskínu er það sjö pró­sent, og tölu­vert undir því sem flokkur Ingu Sæland fékk þá.

Sömu sögu er að segja af Mið­flokknum, sem rétt skreið inn á þing i kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021 með 5,4 pró­sent atkvæða. Hjá Prósent mælist hann með 4,5 pró­sent fylgi, sem allar líkur eru á að dugi ekki til að ná inn manni, en hjá Maskínu mælist fylgið 6,7 pró­sent og á upp­leið.

Svipað er uppi á ten­ingnum hjá Sós­í­alista­flokknum, sem fékk 4,1 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Prósent mælir flokk­inn á svip­uðum stað og þá en Maskína segir 6,1 pró­sent svar­enda styðja Sós­í­alista­flokk­inn, sem myndi skila honum nokkuð örugg­lega inn á þing.

Könnun Maskínu var lögð fyrir dag­ana 16. til 28. des­em­ber og 1.703 svar­endur tóku afstöðu. Könnun Prósents var fram­kvæmd 22. til 30. des­em­ber, var net­könnun með fjögur þús­und manna úrtak og 49,6 pró­sent svar­hlut­falli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár