Flosi Eiríksson nýr framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins

Flosi Eiríks­son hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands Íslands. Flosi sat í bæj­ar­stjórn Kópavogs í 12 ár en und­an­farin ár hefur hann starfað hjá Íslands­stofu.

Flosi Eiríks­son hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands Íslands. Hann tekur við starfi Drífu Snædal en hún var kjör­in for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands í októ­ber. Ráðn­ing­ar­ferlið var í höndum Capacent en alls bár­ust 17 umsóknir um stöð­una.

Í til­kynn­ingu frá Starfs­greina­sam­band­inu segir að Flosi búi að víð­tækri reynslu úr atvinnu­líf­inu, hann er húsa­smiður og við­skipta­fræð­ingur að mennt. Und­an­farin ár hefur hann starfað hjá Íslands­stofu við fræðslu og ráð­gjöf. Áður starf­aði hann m.a. hjá ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­inu KPMG um 10 ára skeið og sem húsa­smiður hjá ýmsum aðilum.

Flosi býr einnig að fjöl­breyttri reynslu af félags­málum, m.a. setu í bæj­ar­stjórn Kópavogs frá 1998 til 2010 auk setu í ýmsum nefndum og ráðum fyrir sveit­ar­fé­lög og ráðu­neyti. Þess utan hefur hann tekið þátt í marg­vís­legu öðru félags­starfi sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið undanfarið ár