Höfum sjaldan verið í betri stöðu til að takast á við áföll

Fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands segir að skuldir heim­ila og fyr­ir­tækja séu heil­brigð­ari en þær hafi verið í tvo ára­tugi.

Harpa Jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands, segir ólík­legt að heim­ili og fyr­ir­tæki lands­ins muni þurfa að ganga í gegnum sam­bæri­legt end­ur­skipu­lagn­ingar- og þreng­ing­ar­ferli og þau gerðu eftir banka­hrunið við næstu lend­ingu í efna­hags­líf­inu. „Við erum vel í stakk búin. Við höfum sjaldan verið í jafn góðri stöðu. Ef við lítum á skuldir heim­il­anna þá erum við að sjá betri mynd en við höfum séð síð­ustu tvo ára­tugi. Svipað er að segja um fyr­ir­tækin, þótt að skulda­vöxtur þar hafi verið örlítið meiri. En horft í sögu­legu sam­hengi síð­ustu 20 árin þá stöndum við sterkt.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Hörpu í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýnt var á mið­viku­dag. Þar ræddu þau inni­hald nýs Fjár­mála­stöð­ug­leika­rits Seðla­banka Íslands. Hægt er að horfa á stiklu úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Harpa ræddi þar einnig inn­grip Seðla­banka Íslands á gjald­eyr­is­markað en um var að ræða annað inn­grip bank­ans á skömmum tíma til að hefta hraða veik­ingu krón­unnar. Harpa segir að inn­gripin eigi sér ætið skamman aðdrag­anda. „Nú er það yfir­lýst mark­mið pen­inga­stefn­unnar að Seðla­bank­inn grípi inn í ef að flöktið á mark­aðnum er mjög mikið. Þannig að ef að krónan hreyf­ist svona hratt og mikið á fáum dögum þá er það metið hverju sinni hvort að grípa skuli inn í til að róa mark­að­inn.“

Hægt er að horfa á 21 mið­viku­dags­ins í heild hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið undanfarið ár