Sonja vill verða formaður BSRB

Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir mun gefa kost á sér í emb­ætti for­manns BSRB í kosn­ingu sem fram fer á þingi banda­lags­ins sem haldið verður dag­ana 17. til 19. októ­ber næst­kom­andi.

Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir mun gefa kost á sér í emb­ætti for­manns BSRB í kosn­ingu sem fram fer á þingi banda­lags­ins sem haldið verður dag­ana 17. til 19. októ­ber næst­kom­andi.

[links]Sonja hefur starfað sem lög­fræð­ingur banda­lags­ins síð­ast­lið­inn ára­tug.

Í yfir­lýs­ingu frá Sonju kemur fram að hún telji að mik­il­væg­asta verk­efni banda­lags­ins sé að auka vel­ferð allra, stuðla að auknu jafn­rétti og tryggja að allir geti lifað á launum sínum.

„Eitt af stærstu bar­áttu­málum okkar í BSRB er stytt­ing vinnu­vik­unnar. Allt of víða ein­kenn­ist starfs­um­hverfi í almanna­þjón­ustu af lág­marks­mönnun og miklu álagi með til­heyr­andi afleið­ingum fyrir heilsu fólks. Stytting vinnu­vik­unnar stuðlar meðal ann­ars að betri líðan, minni streitu, auk­inni starfs­á­nægju og fækkun veik­inda­daga. Við í BSRB þurfum að halda áfram að berj­ast kröft­ug­lega fyrir stytt­ingu vinnu­vik­unnar og betra starfs­um­hverfi,“ segir Sonja meðal ann­ars í yfir­lýs­ing­unni.

Hljóti hún kosn­ingu seg­ist Sonja munu vinna að aðgerðum í hús­næð­is­málum, efla stuðn­ing við barna­fjöl­skyldur, minnka skatt­byrði og tryggja jafnt aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið undanfarið ár