Minningu og arfleifð Guðrúnar Lárusdóttur haldið á lofti

Frú Guðrún Lár­us­dóttir afrek­aði mikið um ævina en hún end­aði snögg­lega þegar Guðrún lenti í bílslysi með dætrum sínum tveimur. Kjarninn rifj­aði upp sögu Guðrúnar.

Frú Guðrún Lárusdóttir
Frú Guðrún Lár­us­dóttir Mynd: Alþingi

Frú Guðrún Lár­us­dóttir er talin ein merkasta kona 20. aldar en hún var ótrú­lega fjöl­hæf og virk í sam­fé­lag­inu. Hún var bæj­ar­full­trúi í Reykja­vík 1912 til 1918, 10 barna móðir, þjóð­kunn fyrir ýmsa menn­ing­ar­starf­semi, fjöl­les­inn og afkasta­mik­ill rit­höf­undur og alþing­is­maður frá 1930 til dauða­dags, auk þess sem hún var virk í félags­starfi. Þannig er Guðrúnu lýst í kynn­ingu á verk­efni Þjóð­ar­bók­hlöð­unnar sem kall­ast En tím­inn skund­aði burt ...

Sýning um Guðrúnu opn­aði í dag og munu við­burðir henni tengdir verða í Þjóð­ar­bók­hlöð­unni. Sýningin mun standa til 10. nóv­em­ber næst­kom­andi. Verk­efn­inu er ætlað að draga fram minn­ingu og arf­leifð Guðrúnar Lár­us­dóttur sem lést í bílslysi í Tungufljóti 1938 þar sem hún drukkn­aði ásamt tveimur dætrum sínum.

„Með því að heiðra minn­ingu Guðrúnar Lár­us­dóttur und­ir­strikum við að bæði ungt fólk og þeir eldri geta lært af konu eins og henni sem tal­aði fyrir góðum málum og sinnti á sér­stakan þátt þeim sem minna máttu sín í þjóð­fé­lag­inu,“ segir í kynn­ing­unni.

Hneigðist snemma að ritstörfum

Guðrún Lár­us­dóttir var fædd 8. jan­úar 1880 á Val­þjófs­stað í Fljóts­dal, dóttir Lárusar Hall­dórs­sonar, pró­fasts og alþing­is­manns og síðar frí­kirkju­prests í Reykja­vík, og Kirstínar Katrínar Pét­urs­dóttur org­an­leik­ara. Guðrún var þriðja í ald­urs­röð sex systk­ina en tvö elstu börnin lét­ust í bernsku. Árið 1885 flutti fjöl­skyldan til Reyð­ar­fjarðar þar sem faðir Guðrúnar gerð­ist prestur frí­kirkju­safn­að­ar­ins.

Hugur Guðrúnar hneigð­ist snemma til rit­starfa og um ferm­ingu tók hún að gefa út hand­skrifað blað sem gekk milli bæj­anna í sveit­inni. Hún rit­aði um bind­ind­is­mál, kven­frelsi og rétt­inda­mál almennt. Fyrir upp­örvun frá föður sínum tók Guðrún að þýða úr erlendum málum og munu fyrstu sögur þýddar af henni hafa birst í blað­inu Framsókn sem mæðgurnar Sigríður Þor­steins­dóttir og Ingi­björg Skapta­dóttir gáfu út á Seyð­is­firði skömmu fyrir alda­mót.

Trúmál urðu Guðrúnu snemma ofar­lega í huga. Haft er eftir henni frá ung­lings­árum að hún vildi hafa fæðst piltur svo hún hefði getað orðið prestur. Lög heim­il­uðu hins vegar ekki slíka menntun ungra stúlkna. Frá þessu er greint á vef Kvenna­sögu­safns­ins.

Fjöl­skylda Guðrúnar flutti til Reykja­víkur árið 1899 en þá var Guðrún tæp­lega tví­tug. Þar kynnt­ist hún manns­efni sínu, Sig­ur­birni Á. Gísla­syni, og gengu þau í hjóna­band árið 1902. Bjuggu þau fyrsta miss­erið í Þing­holts­stræti 3 og síðan í hús­inu númer 11 við sömu götu en frá árinu 1906 að Ási á Sól­völlum og við það hús voru þau oft­ast kennd. Þess má geta að húsið stendur enn og er á mótum Sól­valla­götu og Hofs­valla­götu. Þau eign­uð­ust tíu börn en þrjú þeirra lét­ust á barns­aldri.

Guðrún var mik­ils­met­inn rit­höf­undur en frum­samdar bækur hennar voru meðal ann­ars Ljós og skuggar I-III, Sól­ar­geisl­inn hans, Á heim­leið, Sigur, Tvær smá­sögur, Brúð­ar­gjöfin, Fátækt, Þess bera menn sár I-III og Ritsafn I-IV. Þýddar bækur hennar voru Spádómar frels­ar­ans, Tómas frændi eftir H.B. Stowe og Móðir og barn.

Önnur konan kosin til starfa á Alþingi

Guðrún var bæj­ar­full­trúi í Reykja­vík, sem fyrr segir, frá 1912 til 1918 og í skóla­nefnd jafn­lengi. Hún var fátækra­full­trúi 1912 til 1923 og aftur frá 1930 til ævi­loka 1938. Árið 1930 var Guðrún Lár­us­dóttir kjörin á þing fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Kjör­tíma­bil fyrstu kon­unnar sem kjörin var til Alþingis, Ingi­bjargar H. Bjarna­sonar, var á enda og hún gaf ekki kost á sér til áfram­hald­andi þing­setu. Guðrún var því önnur kona hér á landi sem kosin var til starfa á Alþingi.

Á Alþingi beitti hún sér einkum fyrir braut­ar­gengi ýmissa mann­úð­ar­mála, svo sem stofnun upp­eld­is­heim­ilis fyrir van­gæf börn og ung­linga, stofnun fávita­hælis og drykkju­manna­heim­ilis. Þessi mál hlutu ekki fram­gang á þingi og kom þar margt til: Einkum að þetta voru ekki dæmi­gerð þing­mál á þeim tíma og hún til­heyrði lengst sinnar þing­setu flokki sem ekki átti aðild að stjórn­ar­sam­starfi.

Guðrún var mjög virk í ýmsum félaga­sam­tökum. Hún sat í stjórn KFUK frá 1922 og for­maður 1928 til 1938. Þá var hún for­maður Kristni­boðs­fé­lags kvenna í Reykja­vík frá 1926, sömu­leiðis til ævi­loka. Hún var félagi í IOGT frá 1899 og starf­aði þar um hríð. Hún stóð að stofnun Hús­mæðra­fé­lags Reykja­víkur og var fyrsti for­maður þess 1935 til 1938.

Guðrún drukkn­aði ásamt tveimur dætrum sínum í Tungufljóti þann 20. ágúst 1938. Segir í sam­an­tekt á vegum KGRP að um hafi verið að ræða eitt fyrsta mikla bílslys á Íslandi. Það hafi verið áfall fyrir marga og þótti mikið tjón. Sr. Friðrik Hall­gríms­son hafi lýst henni svo í lík­ræðu, að hún „sam­ein­aði á aðdá­un­ar­verðan hátt trú­aral­vöru og bjart­sýnt glað­lyndi.“

Heim­ildir:

www.gardur.is

www.kvennasogusafn.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið undanfarið ár