Heiða Björg vill halda áfram sem varaformaður

Heiða Björg Hilm­is­dóttir núver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og borg­ar­full­trúi býður sig fram til áfram­hald­andi setu í emb­ætti vara­for­manns, en kosið verður um for­ystu flokks­ins á lands­fundi um helg­ina.

Heiða Björg Hilm­is­dóttir núver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og borg­ar­full­trúi býður sig fram til áfram­hald­andi setu í emb­ætti vara­for­manns, en kosið verður um for­ystu flokks­ins á lands­fundi um helg­ina, 2. til 3. mars.

Í til­kynn­ingu frá Heiðu segir að síð­ast­liðið ár, frá því hún tók við emb­ætt­inu, hafi verið krefj­andi tími, en afar gef­andi, enda sjaldan skemmti­legra í stjórn­málum en þegar sam­staða og ein­drægni ríkir, árangur starfs­ins verði sýni­legur og hreyf­ingin eflist.

„Ég er afar þakk­lát fyrir þennan tíma og það góða sam­starf sem ég hef átt við Sam­fylk­ing­ar­fólk um allt land og sam­verka­fólk í for­ystu flokks­ins. Við eigum mik­inn mannauð í Sam­fylk­ing­unni.“

Heiða segir spenn­andi tíma framundan, áfram­hald­andi upp­bygg­ing Sam­fylk­ing­ar­innar undir for­ystu Loga Ein­ars­sonar, sem lif­andi hreyf­ingar jafn­að­ar­fólks á Íslandi og mik­il­vægar sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, þar sem jafn­að­ar­fólk verði að sækja fram um allt land.

„Ég er full bjart­sýni á fram­haldið og ég veit að hreyf­ing jafn­að­ar­fólks á mikil sókn­ar­færi. Ég vill leggja mitt af mörkum til að við nýtum þau færi og óska því eftir áfram­hald­andi umboði sem vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á kom­andi lands­fundi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið undanfarið ár