Segist aldrei geta fyrirgefið svik verkalýðsforystunnar við alþýðuna

Ragnar Þór Ing­ólfs­son var kjör­inn for­maður VR í fyrra. Hann segir fæsta finna fyrir og sjá hið meinta góð­æri. Ragnar var gestur sjón­varps­þáttar Kjarnans á Hring­braut í vik­unni og ræddi þar stétta­bar­átt­una sem liggur í loft­inu.

„Ég get aldrei fyr­ir­gefið for­yst­unni svikin við alþýð­una með svo marg­vís­legum hætti sem gerð­ist hér eftir hrun. Þetta er staðan sem við erum með uppi í dag út frá því. Ég býð mig fram sem for­mann VR sem van­traust á for­ystu Alþýðu­sam­bands­ins. Sem mér finnst vera í bíl­stjóra­sæt­inu í þessu van­trausti á verka­lýðs­hreyf­ing­una sem við sitjum uppi með. Þetta er ekki bara VR. Við erum að sjá þetta í Eflingu og við erum búin að sjá þetta í Kenn­ara­sam­band­inu.“ Þetta segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, í nýjasta sjón­varps­þætti Kjarnans á Hring­braut. Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni í spil­ar­anum hér að ofan.

Þar segir Ragnar að fæstir virð­ist finna og sjá það meinta góð­æri sem eigi að standa yfir á Íslandi og að fólk sé orðið þreytt á þeirri stöðu sem boðið sé upp á. Ef rót­tækt fram­boð Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, sem einnig var gestur þátt­ar­ins, sigrar í stjórn­ar­kjöri í Eflingu sé komið allt annað lands­lag í íslenskri verka­lýðs­bar­áttu.

Dró viglínu

Ragnar segir að hann hafi þurft að taka ákvörðun um að leggja allt í bar­áttu sína fyrir rétt­lát­ara sam­fé­lagi þegar hann hóf skrif um spill­ingu innan líf­eyr­is­sjóða fyrir mörgum árum síðan. Hann seg­ist hafa gert sér það ljóst að með því væri hann að fara gegn kerf­inu og að það myndi geta haft áhrif á atvinnu­mögu­leika hans.

„Það var ákvörðun sem ég þurfti að taka að gera þetta af ákveð­inni hug­sjón og setja allt í þetta. Það end­aði með átta ára stjórn­ar­setu í VR. Í stað­inn fyrir að hætta þá ákvað ég að taka for­manns­slag­inn. Leggja dálítið spilin á borðið og draga svolitla víg­línu, vegna þess að mér fannst þeir sem á undan mér hafa ekki farið gegn því sem er að í okkar sam­fé­lagi.“

Þar nefnir Ragnar vexti, verð­trygg­ingu, aðkoma líf­eyr­is­sjóða að fjár­mála­kerf­inu og teng­ingu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar við fjár­mála­kerfið í gegnum líf­eyr­is­sjóð­ina. Hreyf­ingin hafi sýnt algjört getu­leysi í að taka stöðu með fólk­inu í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið undanfarið ár