Kristín Soffía vill annað sætið

Kristín Soffía Jóns­dóttir borg­ar­full­trúi sæk­ist eftir öðru sæti í flokksvali Sam­fylk­ing­ar­innar. Heiða Björg Hilm­is­dóttir vara­for­maður hefur gefið kost á sér í sama sæti.

Kristín Soffía Jónsdóttir
Kristín Soffía Jóns­dóttir Mynd: Aðsend.

Kristín Soffía Jóns­dóttir borg­ar­full­trúi sæk­ist eftir 2. sæti í flokksvali Sam­fylk­ing­ar­innar sem fram fer þann 10. febr­úar.

Í til­kynn­ingu frá Kristínu Soffíu kemur fram að hún hafi varið sein­ustu átta árum í bar­áttu fyrir betri borg á vett­vangi borg­ar­stjórnar og setið þar sem borg­ar­full­trúi frá árinu 2014. Áherslur hennar hafa verið í umhverfis-, skipu­lags- og sam­göngu­málum auk þess sem hún hafi látið til sín taka í aðgeng­is­málum fatl­aðra.

Kristín Soffía er með BS í umhverf­is­verk­fræði sem hún segir hafa gagn­ast henni vel og hún hafi lært gríð­ar­lega mikið á þessum átta árum í borg­ar­málum. Hún er þessa dag­ana og mán­uð­ina við­skipta­vinur dag­for­eldra- og leik­skóla­kerf­is­ins og þekkir stöð­una eins og hún er í dag.

Fyrir hefur vara­for­maður flokks­ins, Heiða Björg Hilm­is­dóttir, gefið kost á sér í annað sætið. Hún var í sjötta sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í kosn­ing­unum árið 2014 og náði ekki kjöri sem aðal­maður í borg­ar­stjórn. Heiða Björg kom hins vegar inn í borg­ar­stjórn þegar Björk Vil­helms­dótt­ir, sem var í 2. sæti á lista flokks­ins í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um, ákvað að hætta í stjórn­málum haustið 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfylking

Mest lesið undanfarið ár