Hvað er barnamenningarhátíð?

Við­burðir eru víða um höf­uð­borg­ar­svæðið í til­efni Barna­menn­ing­ar­há­tíð­ar­innar sem haldin er í sjö­unda sinn í ár.

Leiðarljós hátíðarinnar eru gæði, margbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi.
Leið­ar­ljós hátíð­ar­innar eru gæði, marg­breyti­leiki, jafn­ræði og gott aðgengi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Varst þú að setja barna­mynd af þér á Facebook vegna þess að allir voru að gera það í til­efni barna­menn­ing­ar­há­tíðar? Hélstu að þátt­töku þinni í hátíð­inni væri þar með lokið og ekk­ert meira hægt að gera? Ef svo er þá hafðir þú rangt fyrir þér því einnig er hægt að taka þátt í hátíð­inni í raun­heimi.

Barna­menn­ing­ar­há­tíð er sam­vinnu­verk­efni á vegum menn­ingar- og ferða­mála­sviðs ásamt skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar. Höf­uð­borg­ar­stofa heldur utan um við­burði hátíð­ar­innar sem fara fram víðs vegar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ekki bara á Facebook.

Hátíðin hefur verið haldin árlega síðan 2010 hófst hún í ár þriðju­dag­inn 25.apríl og stendur yfir til og með sunnu­deg­inum 30.apríl. Hægt er að vera vitni af og taka þátt í fjöl­breyttum upp­á­komum sem fara fram skólum og frí­stunda­mið­stöðvum.

Einnig er dag­skrá í Ráðhúsi Reykja­víkur, Hörpu og lista- og menn­ing­ar­húsum borg­ar­innar. Markmið hátíð­ar­innar er að efla menn­ing­ar­starf barna og ung­menna í borg­inni þar sem þátt­taka þeirra gegnir lyk­il­hlut­verki.

Þátttaka og áhorf í bland

Meðal ann­ars er í boði að fara í Grasa­garð Reykja­víkur þar sem 5. bekkur Laug­ar­nes­skóla stendur fyrir sýn­ing­unni Rann­sókn­ar­stofa: Hvað leyn­ist í nátt­úr­unni? Þar sem lögð er áhersla á virkt sam­spil þátt­tak­enda við umhverfi Grasa­garðs­ins og umræðum um hvernig hægt er að byggja sann­gjarnt sam­fé­lag og stuðla að sjálf­bærni.

Einnig stendur Þjóð­laga­sveitin Þula og barna­hópur Þjóð­dansa­fé­lags Reykja­víkur stendur fyrir við­burði í Ráðhúsi Reykja­víkur þar sem gestum gefst tæki­færi á að taka þátt í söng og leik. Markmið upp­á­kom­unnar er að auka þekk­ingu barna á íslenskri þjóð­lagatón­list og þjóð­dönsum.

Fyrir utan þátt­töku­verk­efnin eru einnig fjöl­margar sýn­ingar. Í Ráðhúsi Reykja­víkur verður sýn­ingin Augun mín hafa svo margt að segja. Á sýn­ing­unni eru verk sem gerð hafa verið með augn­stýri­bún­aði. Bún­að­ur­inn er í eigu Kletta­skóla og er not­aður af þeim sem af ein­hverjum ástæðum geta ekki tjáð sig með orðum. Í vetur hafa nem­endur unnið mynd­verk með bún­að­inum þar sem augn­hreyf­ingar nem­enda skapa lista­verk.

Í Tjarn­ar­bíói verður brúðu­sýn­ing ætluð tveggja ára og eldri sem kall­ast Á eigin fótum. Sýningin fjallar um sex ára upp­á­tækja­sama stelpu sem býr í Reykja­vík milli­stríðs­ár­anna. Hún er send ein í afskekkta sveit sum­ar­langt. Þar þarf hún að takast á við fram­andi umhverfi sem er alger and­stæða þess sem hún þekki. Tónlist leik­verks­ins er frum­samin og verður flutt í lif­andi flutn­ingi með sýn­ing­unni. Eftir sýn­ing­una gefst áhorf­endum tæki­færi á að hitta leik­ar­ana ásamt því að skoða brúð­urnar og leik­mynd­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár