Andri Valur Ívarsson ráðinn lögmaður BHM

Andri Valur Ívarsson
Andri Valur Ívarsson

Andri Valur Ívarsson, lög­fræð­ingur hdl., hefur verið ráð­inn lög­maður Banda­lags háskóla­manna (BHM). Hann er fæddur árið 1980 og lauk meist­ara­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 2014 en hefur einnig lokið bakkalár­prófi í hag­fræði frá sama skóla.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá BHM.

Hann hefur verið lög­fræð­ingur og hag­fræð­ingur Þjón­ustu­skrif­stofu FFSS frá árinu 2015 en starf­aði áður m.a. hjá Umboðs­manni skuld­ara og Þekk­ing­ar­neti Þing­ey­inga á Húsavík. Sem lög­maður BHM mun Andri m.a. sinna ráð­gjöf um lög­fræði­leg efni til banda­lags­ins og aðild­ar­fé­laga þess og ann­ast túlkun kjara­samn­inga, laga og reglna er varða vinnu­réttar- og stjórn­sýslu­mál, að því er segir í til­kynn­ingu frá BHM.

Þá mun Andri Valur sinna úrlausn ein­stak­lings­mála félags­manna aðild­ar­fé­lag­anna, fræðslu um lög­fræði­leg mál­efni og sitja sem full­trúi banda­lags­ins í ýmsum nefndum um vinnu­mark­aðstengd mál­efni.

Andri tekur við starf­inu af Ernu Guð­munds­dóttur sem nýlega var ráðin fram­kvæmda­stjóri BHM.

Bandalag háskóla­manna eru sam­tök 27 fag- og stétt­ar­fé­laga háskóla­mennt­aðs fólks með sam­tals rúm­lega tólf þús­und félags­menn innan sinna raða. Félags­menn starfa á öllum sviðum íslensks atvinnu­lífs, jafnt hjá ríki, sveit­ar­fé­lögum, sjálfs­eign­ar­stofn­unum og einka­fyr­ir­tækjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið undanfarið ár