Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag, að þeirra mati. Þar er ekkert minnst á íslenskar kjara­deilur, umræður um hvaða handboltalið sé best í Íslands­sögunni eða sigurvegara söngva­keppni framhalds­skólanna. Þessir atburðir eru í staðinn til umfjöllunar:


  1. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lyfti í gær banni á því að selja Írönum háþróuð loft­varnarkerfi.

  2. Búið er að ákæra Robert Bates, lögreglu­mann á eftir­launum sem skaut hinn óvopnaða Eric Harris óvart í Tulsa Oklohoma nýverið, fyrir manndráp.

  3. Fjórir fyrrum starfs­menn Blackwater voru í gær dæmdir í lífstíðar­fangelsi fyrir morð á íröskum borgurum sem þeir frömdu árið 2007, á meðan að á stríðinu í Írak stóð.

  4. Stór­fyrirtækið Amazon og útgáfan HarperCollins hafa gert með sér risa­samning til margra ára.

  5. Erfingi Nina Ricci ilmvatns- og tísku-veldisins hefur verið fundin sekur um skattsvik í Frakk­landi. Konan, Arlette Ricci,

  6. Frans páfi reiddi marga Tyrki til reiði á sunnudag með því að segja að fjölda­morð Tyrkja á Armenum fyrir hundrað árum síðan væru fyrstu þjóðar­morð tuttugustu aldarinnar.

  7. Amnesty International hefur birt tölur um að nígerísku samtökin Boko Haram hafi numið á brott að minnsta kosti tvö þúsund konur og stúlkur í landinu frá byrjun árs 2014.

  8. Marco Rubio, sem situr í öldungar­deild Banda­ríkjaþings fyrir Repúblíkanaflokkinn, hefur tilkynnt að hann sækist eftir því að verða forseta­efni flokksins í kosningunum á næsta ári.

  9. Farþega­flugvél sem var að fljúga frá Seattle til Los Angeles þurfti að nauðlenda eftir að flugvallar­starfsmaður sofnaði í farangurs­rými vélarinnar og vaknaði ekki fyrr en hún hafði tekið á loft.

  10. Dauðum Omura-hval skolaði á land í smábæ norðan við Perth í Ástralíu. Þessi tegund hvala hefur einungis sést í örfá skipti og mjög lítið er vitað um hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár