Áhættan hverfi ekki þótt krónan sé tengd við evru

Fyrr­verandi seðla­bankastjóri segir upptöku evru geta minnkað gjaldmiðla­áhættu hérlendis verulega. Slík áhætta myndi þó enn vera til staðar að miklu leyti hér á landi ef krónan yrði tengd við evru.

Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri
Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Mynd: Bára Huld Beck

Vextir yrðu enn hærri hérlendis heldur en í öðrum Evrópu­sambands­löndum ef íslenska krónan yrði tengd við evru, þar sem gjaldmiðla­áhætta myndi ekki hverfa við slíka tengingu. Þetta segir Már Guðmundsson, fyrr­verandi seðla­bankastjóri í skýrslu sinni til fjármála- og efnahags­ráðherra um stöðu lífeyris­sjóða í hagkerfinu.

Skýrslan var birt á vef Alþingis í síðustu viku, en hún var gerð að beiðni Þorgerðar Katrínar Gunnars­dóttur, formanni Viðreisnar, auk samflokksmanna hennar og þing­mönnum Pírata og Flokks fólksins. Á meðal þess sem þing­mennirnir óskuðu eftir í skýrslu­beiðni sinni var að óháður aðili fjallaði um hvaða áhrif upptaka evru hefði á stöðu lífeyris­sjóða.

ESB-aðild eða tenging við evru

Samkvæmt skýrslu Más felur möguleg upptaka evru í sér tvær mögulegar leiðir: Annars vegar fulla aðild að evru­svæðinu og hins vegar samningur um fasttengingu krónunnar við evru. Már segir tölu­verðan mun vera á áhrifum þessara tveggja leiða á stöðu lífeyris­sjóðanna þar sem þeir bjóða upp á mismun­andi gjaldeyris­áhættu.

Taki Ísland upp evru með inngöngu í Evrópu­sambandið væri hægt að minnka gjaldmiðla­áhættu verulega, að mati Más, þar sem greiður aðgangur fengist að fjármála­mörkuðum aðildar­landa sambandsins. Þó telur hann að sú áhætta yrði enn til staðar, þar sem enn yrði fjárfest utan evru­svæðisins, en að hún yrði minni og miklir mögu­leikar væru á að verja hana.

Tenging krónunnar við evru myndi aftur á móti fela í sér meiri gjaldmiðla­áhættu, þar sem mögu­leikinn á rofi hannar muni allavega um langa hríð valda áhættu­álagi í vöxtum og gengi hér á landi. Einnig segir Már að það gæti orðið torsótt að tengja krónuna við evruna, þar sem miklar gengis­sveiflur á milli gjald­miðlana gæti leitt til þess að Seðla­banki Evrópu þyrfti oft að grípa inn í með gjaldeyris­viðskiptum til að jafna þær.

Segir ekki hægt að reikna sig inn í lausnina

Í viðtali í jólablaði Vísbendingar í fyrra sagði Már að stjórn­málamenn gætu ekki einungis vísað í útreikninga hagfræðinga um hina einu réttu niður­stöðu um ákvarðanir eins og aðild Íslands að Evrópu­sambandinu.

Hann sagði að mynt­bandalag væri alvöru kostur fyrir Ísland, en að það lægi ekki endilega fyrir hvort sá kostur væri fýsilegri við núverandi aðstæður en sá sem þjóðin býr við um þessar mundir. Eini raunhæfi kosturinn á mynt­bandalagi væri aðild að Evrópu­sambandinu og að umræða, en samkvæmt Má fara umræður og ákvarðanir fyrir það langt út fyrir svið hagfræðinnar.

„Mér finnst eins og ýmsir, bæði stjórn­málamenn og aðrir, hafi tilhneigingu til að ætlast til þess að hagfræðingar reikni þá inn í lausnina. En það er ekki þannig og það verður ekki þannig,“ bætti Már við í viðtalinu.

„Ef mál hafa mjög víðtæk þjóðfélags­áhrif og pólitískar hliðar, þá verða stjórn­mála­mennirnir að meta alla kosti og galla slíkra mála, taka þá forystu sem þeir vilja taka á hverju sviði og þora að standa með því. Þeir geta þá ekki einungis vísað í að það sé búið að reikna þetta út og það sé það eina rétta. Því að þannig er það ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár