Tveir af hverjum þremur vilja fjölga eftirlitsmyndavélum

Mikill meiri­hluti lands­manna, eða alls 67,5 pró­sent, vill fjölga eft­ir­lits­mynda­vélum um landið. Þá eru konur lík­legri til að vilja fjölga mynda­vélum en karlar.

Tveir af hverjum þremur vilja fjölga eftirlitmyndavélum um landið. Einungis 12 prósent aðspurða eru andvíg fjölgun myndavéla. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Zenter rannsóknir framkvæmdu fyrir Fréttablaðið dagana 25. til 27. júní.

Fjölgun eftirlitsmyndavéla

Í könnuninni segjast 67,5 prósent vera hlynnt fjölgun myndavéla, þar af segjast 30 prósent mjög hlynnt slíkri fjölgun, en 36 prósent frekar hlynnt. Þá voru 12 prósent þeirra sem tóku afstöðu andvíg fjölgun myndavéla, þar af fimm prósent mjög andvíg.

Lögregluembættin og Neyðarlínan hafa átt í samstarfi við sveitarfélög undanfarið ár um fjölgun eftirlitsmyndavéla. Í maí í fyrra voru 34 virkar eftirlitsmyndavélar á vegum lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Kristinn J. Ólafsson, verkefnastjóri hjá Reykjavíkur, segir í samtali við Fréttablaðið að samkomulaginu um öryggismyndavélar sé þannig háttað að borgin kaupir vélarnir og útvegar ljósleiðarasamband. Neyðarlínan ber síðan ábyrgð á uppsetningu og viðhaldi og lögreglan annar vöktun.

Konur líklegri til að vilja fjölga eftirlitsmyndavélum

Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar er lítill munur á afstöðu eftir búsetu tekjum og menntun en munur eftir kyni. Alls segjast 75 prósent kvenna vilja fjölga eftirlitmyndavélum en 60 prósent karla.

Í niðurstöðum könnun Ríkislögreglustjóra um reynslu landsmanna af afbrotum og öryggistilfinningu íbúa í fyrra kemur fram að konur upplifa mun minna öryggi en karlar í miðborg Reykjavíkur þegar myrkur er skollið á eða eftir miðnætti um helgar. Alls sögðust 75,5 prósent kvenna vera óöruggar einar á ferli í miðborg Reykjavíkur, eftir miðnætti um helgar eða þegar myrkur er skollið á, samanborið við 43,5 prósent karla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár