Telja mörg þúsund hafa verið drepna í mótmælum í Íran

Gögn mann­réttinda­samtaka og rannsókn breska blaðsins Guardian benda til þess að tugir þúsunda gætu hafa verið drepnir í Íran. Þúsundir dauðsfalla hafa verið staðfest og tugþúsundir til viðbótar eru sagðar óskráðar.

Mótmælt
Mótmælt Víða hefur fólk komið saman til stuðn­ings mót­mæl­enda í Íran. Mynd: AFP

Tugþúsundir manna gætu hafa fallið þegar írönsk stjórn­völd kæfðu niður mótmæli sem brutust út í landinu í lok desember, samkvæmt rann­sóknum alþjóðlegra fjölmiðla og mann­réttinda­samtaka. Ný rannsókn The Guardian og tölur frá mann­réttinda­samtökum benda til þess að raun­verulegur fjöldi látinna sé margfalt hærri en stjórn­völd í Teheran viðurkenna.

Guardian greindi í morgun frá því að vitnis­burðir lækna, réttar­lækna og starfs­fólks á sjúkra­húsum og greftrunar­stöðum bendi til þess að allt að 30.000 manns kunni að hafa látið lífið. Fjöl­miðillinn hefur rætt við yfir 80 heilbrigðis­starfsmenn sem lýsa kerfis­bundnum aftökum, hvarfi líkams­leifa og fjölda­greftrunum sem ætlað hafi verið að fela umfang dauðsfalla.

Yfir 6.000 dauðsföll staðfest – 17.000 til rannsóknar

Samkvæmt Human Rights Activists News Agency (HRANA), mann­réttinda­samtökum með aðsetur í Banda­ríkjunum, hefur nú verið staðfest að 6.126 manns hafi látið lífið í mótmælunum. Þar af voru 5.777 mótmælendur, 86 börn, 214 liðsmenn öryggis­sveita og 49 óbreyttir borgarar, …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár