Fordæmalaust umfang fjársvika í Kína - Þúsund milljarða Ponzi-svikamylla á netinu

Samtals hefur 21 verið hand­tekinn í Kína vegna fjársvika sem talið er að nemi um þúsund milljörðum íslenskra króna.

Kínversk stjórn­völd handtóku í gær og í dag 21 starfs­mann fyrir­tækisins Ezubao, sem bauð upp á lána­þjónustu á netinu, en slík starfsemi hefur vaxið hratt í Kína á undan­förnum misserum. 

Samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC er talið að 900 þúsund einstaklingar hafi verið í viðskiptum við Ezubao, og séu fórnar­lömb viða­mikils svindls á netinu sem nemur samtals 7,6 milljörðum Bandaríkja­dala eða rétt um þúsund milljörðum króna.

Engin fordæmi eru fyrir máli sem þessu í Kína, en stjórn­völdum hefur gengið illa að byggja upp eftirlit með skugga­banka­starfsemi, ekki síst á netinu, en heildar­umfang þess markaðar nemur um 2.500 milljörðum Bandaríkja­dala. Skugga­banka­starfsemi er utan hefð­bundinna banka sem eru undir ströngu eftirliti yfirvalda.

Stofnandi fyrir­tækisins heitir Ding Ning, en það var stofnað árið 2014. Hann er jafnframt stjórnar­formaður félags að nafni Yucheng Group. Hann er á meðal hinna handteknu.

Samkvæmt umfjöllun BBC hafa stjórn­völd í Kína sagt, að 95 prósent þeirra tilboða, sem komu í gegnum síðuna, sem síðan var lánað vegna, hafi verið fölsk. Þannig hafi peningar verið fengnir að láni á fölskum forsendum.

Málið er nú í rannsókn, en samkvæmt fréttum BBC, hafa stjórn­völd í Kína sagt að gögn staðfesti umfangs­mikla fjársvika­starfsemi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár