Grikkland enn einu sinni á barmi hruns - úrslitafundir í gangi

Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, bíður þess nú að fá svar frá kröfuhafa­ráði ríkis­sjóðs landsins en hann lagði fram tilboð til þeirra á föstudag, til þess að taka afstöðu til. Tilboðið, sem ekki hefur verið gert opinbert, felur í sér breytingu frá þeirri áætlun sem unnið hefur verið eftir til þessa, en samt munu skattar hækka enn meira, eignir ríkisins seldar og sérstök gjöld sett á bæði alkahól og sígarettur, að því er breska ríkis­útvarpið BBC greinir frá.

Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn og fjármála­ráðherrar Evrópu­sambands­ríkja eru nú með tilboð grískra stjórn­valda til skoðunar, en niður­staða verður að liggja fyrir innan skamms því fyrirséð er að ríkis­sjóður Grikk­lands getur ekki staðið við skuld­bindingar sínar í apríl, ef ekki verður samþykkt að lána til Grikk­lands á þeim forsendum sem stjórn­völd, með Syriza flokkinn í broddi fylkingar, vilja.

Eftir að Syriza vann kosninga­sigur í Grikk­landi og komst til valda, meðal annars á grund­velli loforða um að hætta að starfa eftir ríkis­fjármála­áætlun í samstarfi við AGS og ESB, hefur illa gengið að móta næstu skref. Fundirnir nú um helgina, eru taldir ráða úrslitum um það hvort stjórn­völd í Grikk­landi nái fram breytinga­tillögum sínum eða ekki. Ef ekki verður fallist á að taka meira tillit til þess sem grísk stjórn­völd vilja, þá er lítið annað að gera en að halda áfram að starfa eftir þeirri áætlun sem liggur fyrir, en hún miðast við að endur­greiða 240 milljarða evra skuldir ríkis­sjóðs Grikk­lands, með miklum fórnum og hagræðingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár