Samsæriskenningar Sigmundar Davíðs: Frá loftárásum til hlerana

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður Mið­flokks­ins, telur að brot­ist hafi verið inn í síma þing­manna á Klaustur bar. Hann hefur áður lýst yfir áhyggjum af því að brot­ist hafi verið inn í tölvu hans og að hann hafi verið eltur af kröfu­höfum. Stundin tekur saman helstu sam­sær­is­kenn­ingar Sig­mundar í gegnum tíð­ina.

Lík­leg­asta skýr­ingin á því að til er hljóð­upp­taka af orða­skiptum þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins þar sem þeir úthúða stjórn­mála­konum og ræða póli­tísk hrossa­kaup sín á milli, er sú að óprút­tnir aðilar brut­ust inn í síma ein­hvers þeirra áður en fund­ur­inn hófst, eða kom þar fyrir sér­stökum hler­un­ar­bún­aði. Atvikið er svo alvar­legt að grípa verður til aðgerða gegn fjöl­miðlum. Verði það ekki gert, eru íslensk stjórn­mál og íslenskt sam­fé­lag gjör­breytt. Þetta er sú sýn sem birt­ist í yfir­lýs­ingu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins og fyrrum for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, á Facebook í gær­kvöldi, í kjöl­far upp­ljóstrana Stund­ar­innar og DV, sem sýna fram á að hann og kollegar hans úr Mið­flokki og Flokki fólks­ins töl­uðu með niðr­andi hætti um ýmsar stjórn­mála­konur og stát­uðu sig af því að hafa skipað sendi­herra í skiptum fyrir greiða í fram­tíð­inni. 

Þetta er ekki í fyrsta skipti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár