Útlán til heimila hafa aukist en útlán til fyrirtækja dregist saman það sem af er ári

Bank­arnir nýttu svig­rúm sem var gefið til að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar kór­ónu­veirunnar til að stór­auka útlán til íbúð­ar­kaupa. Útlán til fyr­ir­tækja hafa hins vegar dreg­ist saman.

Bankastjórar þriggja stærstu banka landsins.
Banka­stjórar þriggja stærstu banka lands­ins. Mynd: Samsett

Það sem af er ári hafa útlán banka til heim­ila auk­ist um níu til ell­efu pró­sent, og er vöxt­ur­inn nær ein­vörð­ungu til­kom­inn vegna auk­inna íbúða­lána. Hækkandi stýri­vextir, sem hafa farið ur 0,75 pró­sent í vor í 2,0 pró­sent nú, hafa gert það að verkum að hlut­deild end­ur­fjár­mögn­unar hefur minnkað.

Útlán til fyr­ir­tækja hafa hins vegar dreg­ist saman frá byrjun árs 2021 og á þriðja árs­fjórð­ungi þess árs var stofn útlána banka til fyr­ir­tækja 2,9 pró­sent minni en hann var á sama tíma árið áður og um eitt pró­sent minni að teknu til­liti til áhrifa geng­is­breyt­inga á fyr­ir­tækja­lán í erlendum gjald­miðlum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í rit­inu Pen­inga­málum sem Seðla­banki Íslands gaf út í síð­ustu viku.

Þar segir að útlán til nær allra atvinnu­greina hafi dreg­ist saman þrátt fyrir að efna­hags­um­svif hafi tekið kröft­ug­lega við sér. Mark­aðs­fjár­mögnun fyr­ir­tækja ásamt fjár­mögnun í gegnum sér­staka fag­fjár­festa­sjóði hafi þó að ein­hverju leyti vegið á móti sam­drætti útlána.

Svigrúmið nýtt til íbúðalána

Tölurnar sýna að íslensku bank­arnir nýttu það aukna svig­rúm sem þeir fengu með lækkun á eig­in­fjár­kvöðum eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á í að lána heim­ilum til hús­næð­is­kaupa. Hlut­deild banka í útistand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­sent en var 55 pró­sent í byrjun árs 2020.

Samhliða hefur orðið eðl­is­breyt­ing á lán­tökum lands­manna við það að hlut­fall óverð­tryggðra lána af öllum íbúða­lánum hefur hækkað gríð­ar­lega. Það var 27,5 pró­sent í byrjun árs 2020 en er nú komið yfir 50 pró­sent. Hlutfall lána sem er á breyti­legum vöxtum, og fylgir því stýri­vaxta­hækk­unum, hefur sömu­leiðis aldrei verið hætta. Í Pen­inga­málum segir enda að „áhrif vaxta­breyt­inga Seðla­bank­ans koma því fyrr fram en áður og ljóst er að nýlegra vaxta­hækk­ana er þegar farið að gæta í greiðslu­byrði hluta heim­ila.“

Hefur stóraukið hagnað bankanna

Þessi þróun hefur vigtað umtals­verð inn í það að kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Arion banki og Íslands­banki, hafa skilað meiri hagn­aði á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um 60 millj­örðum króna, en þeir hafa gert innan árs frá árinu 2015. Þar skipta vaxta­tekjur vegna auk­inna íbúð­ar­lána lang­mestu máli. Vaxta­á­lag á íbúða­lán hefur enda hald­ist til­tölu­lega stöðugt.

Arion banki hefur sam­hliða greint frá því að bank­inn stefni að því að losa um 88 millj­arða króna til hlut­hafa sinna í gegnum end­ur­kaup á bréfum og arð­greiðslur frá byrjun árs 2021 og þar til boð­uðu útgreiðslu­ferli bank­ans verður lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár