Dotcom er blankur, svanurinn hans var myrtur og konan stakk af með 17 ára ungling

Hinn skraut­legi Kim Dotcom lifir nokkuð ævintýra­legu lifi. En að undan­förnu virðist allt ganga á aftur­fótunum hjá stofnanda niðurhals­síðnanna MEGA og Megaupload. Nýverið hætti PayPal að taka við greiðslum frá viðskipta­vinum MEGA sem gerir það að verkum að allt fjárflæði til Dotcom vegna hennar var stöðvað. Aðgerðin kemur á vondum tíma fyrir Dotcom sem virðist vera orðinn nokkuð félítill. Hann hefur að minnsta kosti biðlað til hæstaréttar í Nýja Sjálandi, þar sem hann býr um þessa mundir, um að aflétta frystingu á eignum sínum sem metnar eru á um tólf milljón dala, um 1,6 milljarða króna, svo hann geti borgað leigu, borgað lögmönnum sínum og keypt í matinn. Eignirnar voru frystar vegna mála sem rekin eru gegn Dotcom þar sem því er haldið fram að niðurhals­síðurnar hans séu ólöglegar.

Samkvæmt frétt Business Insider eru peninga­vandamál ekki það eina sem Dotcom er að glíma við þessa daganna, því einhver myrti einn af svönunum hans og konan hans, Mona Dotcom, stakk af með 17 ára strák sem hann hafði ráðið til að spila tölvu­leiki við fjölskyldu­meðlimi.

 

PayPal closes MEGA's account under pressure from Visa/MC due to end-to-end encryption. https://t.co/viQ0QuIEC6 pic.twitter.com/DWTDazVyvr

— MEGA (@MEGAprivacy) February 27, 2015

Svanurinn myrtur

Undan­farin ár hefur Dotcom búið á Nýja Sjálandi, en bandarísk stjórn­völd vilja mjög hafa hendur í hári þessa finnsk-þýska internet-frumkvöðli. Hann sagði frá því í lok síðasta árs að hann væri orðinn félaus og ljóst að ákvörðun PayPal um að loka greiðslu­gáttinni hans mun einungis dýpka þá hít.

Ekki það að Dotcom hafi liðið skort undan­farin ár. Hann leigir eitt íburðar­mesta hús sem fyrir­finnst í Nýja Sjálandi og á lóðinni hans búa meðal annars svanir. Þeim fækkaði reyndar um einn fyrir skemmstu, en Dotcom heldur því fram að einn svana hans hafi verið myrtur fyrr í þessum mánuði.

My swan was murdered :-( pic.twitter.com/lBDShYf7we — Kim Dotcom (@KimDotcom) February 15, 2015

Í kjölfarið óskaði hann eftir nýju heimili fyrir maka hins myrta svans þar sem sá virðist haldinn slæmu þunglyndi og neitar að éta eftir ástvina­missinn. Dotcom telur auk þess að svanurinn sé ekki lengur öruggur þar sem hann býr nú eftir morðið á maka hans.

The widowed Swan is deteriorating. Doesn't move. Doesn't eat. So sad. #HeartbrokenSwan pic.twitter.com/mu2jOxv0ic

— Kim Dotcom (@KimDotcom) February 15, 2015

Stakk af með 17 ára ungling

Til að bæta gráu ofan á svart þá fór eiginkona Dotcom, og móðir tvíbura hans, frá honum seint á síðasta ári. Hún stakk af með 17 ára dreng sem Dotcom hafði ráðið til að spila tölvu­leiki við fjölskyldu­meðlimi. Miðað við viðbrögð Dotcom á Twitter þá hefur brott­hlaup konu hans ekki farið neitt sérstak­lega vel í hann, en þau berjast nú hatramm­lega fyrir dómstólum vegna eigna­skipta í kjölfar skilnaðarins. Ef full­yrðingar Dotcom um blankheit eru réttar er hins vegar ólíklegt að Mona geti átt von á miklum peningum frá honum.

I helped & hired a 17yr old troubled kid to play Xbox with Mona's brothers. 1 year ago he decided to play with Mona. pic.twitter.com/WRBH7MWotA — Kim Dotcom (@KimDotcom) February 18, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár