Framkvæmdastjórn og stjórn Flokks fólksins kemur saman seinna í dag

Stjórn Flokks fólks­ins og fram­kvæmda­stjórn mun koma saman klukkan fimm í dag til þess að ræða málið innan sinna raða.

Inga Sæland
Inga Sæland Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn Flokks fólks­ins og fram­kvæmda­stjórn mun koma saman klukkan fimm í dag til þess að ræða málið innan sinna raða. Þetta kemur fram í máli Ingu Sæland, for­manns Flokks fólks­ins, í umfjöllun Stund­ar­innar í dag.

Inga segir að sér sé brugðið vegna þess sem fram hefur komið. Vísar hún til ummæla þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins sem hafa verið til umfjöll­unar á frétta­miðlum hér á landi í gær­kvöldi og í dag. Hún seg­ist aftur á móti ekki hafa orðið vör við klofn­ing innan flokks­ins.

„Við erum að tala um 12 pró­sent kjör­inna Íslend­inga sem eru að haga sér svona. Og ef skila­boðin eru svona, sem lög­gjaf­inn er að senda til fólks­ins í land­inu þá er það bara dap­urt og við tökum ekki þátt í því,“ segir Inga í sam­tali við Stundina en hún sé „undr­andi“ og „hissa“ vegna upp­lóstrana af fundi þing­manna Flokks fólks­ins og Mið­flokks­ins.

„Mér finnst þetta bara dap­urt og það lýsir bara þeim sem við­hafa svona munn­söfnuð og fyrst og síð­ast, alveg rosa­legri lít­ils­virð­ingu og kven­fyr­ir­litn­ingu, og kemur manni algjör­lega í opna skjöldu, sér­stak­lega frá ein­stak­lingum sem þykj­ast nú aldeilis vera jafn­rétt­is­sinn­aðir og allt það, það er greini­lega ekki svo, það er nokkuð ljóst,“ segir hún.

Sagði viðbrögð Sigmundar sorgleg

Inga sagði málið allt saman sorg­legt í við­tali við morg­un­út­varp Rásar 2 í morgun og enn sorg­legri væru við­brögð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins. Hann var einn fjög­urra þing­manna þess flokks sem sat við drykkju á umræddum hitt­ingi og tók virkan þátt í umræðum þar sem rætt var með niðr­andi hætti um m.a. aðra stjórn­mála­menn og konur.

Sig­mundur Davíð birti stöðu­upp­færslu í gær þar sem hann fjall­aði ekki efn­is­lega um neitt sem fjöl­miðlar höfðu birt úr upp­tök­unum en sagði það alvar­leg­ast í mál­inu „ef raunin er sú að á Íslandi sé farið að stunda hler­anir á einka­sam­tölum stjórn­mála­manna. Hafi verið gerð hljóð­upp­taka af fundi þeirra sex þing­manna sem þar eru nefndir hlýtur það að telj­ast alvar­legt mál. Hóp­ur­inn sem vísað er til sat einn úti í horni og því ekki um annað að ræða en að brot­ist hafi verið inn í síma ein­hvers þeirra sem þarna voru staddir eða beitt hler­un­ar­bún­að­i.“ Hann gaf einnig í skyn að hann vildi láta rann­saka fjöl­miðla vegna þess að tal hans við þing­menn­ina hafi verið tekið upp.

Inga sagði við­brögð Sig­mundar Davíðs vera þau sömu og í mörgum öðrum málum sem að honum snúi, t.d. „þegar hann flytur bunka af pen­ingum“ í skatta­skjól. Hann kenni öðrum um og geti ekki litið í eigin barm. Mið­flokk­ur­inn megi „éta það sem úti frýs“. Flokkur fólks­ins sé ekki að fara í eina sæng með þeim flokki með neinum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár