Heiða Björg nýr skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að skipa Heiðu Björgu Pálma­dóttur í emb­ætti skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu inn­viða heil­brigð­is­þjón­ustu í ráðu­neyt­inu.

Heiða Björg Pálmadóttir
Heiða Björg Pálma­dóttir Mynd: Stjórnarráðið

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að skipa Heiðu Björgu Pálma­dóttur í emb­ætti skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu inn­viða heil­brigð­is­þjón­ustu í ráðu­neyt­inu.

Þetta kemur fram á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Alls bár­ust 18 umsóknir um emb­ættið en umsókn­ar­frestur rann út þann 21. júní síð­ast­lið­inn. Ráð­gef­andi hæfn­is­nefnd um skipun í emb­ættið mat Heiðu „mjög vel hæfa til að gegna emb­ætt­inu“. Skipað verður í emb­ættið til fimm ára.

„Heiða Björg lauk emb­ætt­is­prófi í lög­fræði frá Háskóla Íslands árið 2004 og hlaut leyfi til starfa sem hér­aðs­dóms­lög­maður árið 2008 og leggur nú stund á dokt­ors­nám í lög­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík. Hún hefur gegnt emb­ætti for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu frá árinu 2018. Áður starf­aði hún um ára­bil sem yfir­lög­fræð­ingur á sömu stofnun. Hún hefur starfað sem stunda­kenn­ari við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík og við félags­vís­inda­svið Háskóla Íslands, starf­aði sem lög­fræð­ingur hjá Umboðs­manni alþingis 2006-2008 og gegndi lög­fræði­störfum á sjúkra­trygg­inga­sviði Trygg­inga­stofn­unar rík­is­ins 2005-2008,“ segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Í umsögn ráð­gef­andi nefndar segir að Heiða Björg hafi afburða þekk­ingu á sviði opin­berrar stjórn­sýslu. Þá hafi hún sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu og yfir­lög­fræð­ingur á stofn­un­inni þar sem starfa rúm­lega 100 starfs­menn við flókna og við­kvæma starf­semi, öðl­ast góða stjórn­un­ar­reynslu, auk þekk­ingar og reynslu í opin­berum fjár­málum og rekstri. Jafn­framt er bent á að hún hafi borið ábyrgð á og stýrt stefnu­mótun stofn­un­ar­innar á tímum mik­illa breyt­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár