Verkefni Tsipras: flóttamannavandi og endurreisn hagkerfis

Alexis Tsipras sór embættiseið í annað sinn sem forsætis­ráðherra Grikk­lands eftir kosninga­sigur Syriza-flokksins um helgina. Tsipras hafði boðað til kosninga svo þingið og ríkis­stjórnin fengi endurnýjað umboð til að leysa úr vanda­málum Grikkja. Hann lofar að gera endur­reisn efnahags landsins að sínum „fyrsta bardaga“. Frá þessu er greint á vef Reuters.

Syriza-flokkurinn fékk mest fylgi allra framboða til gríska þingsins, þvert á væntingar sem höfðu dvínað undan­farið um leið og foyrsta flokksins leiddi viðræður um skulda­vandann við Evrópu­sambandið og aðra lána­drottna ríkisins. Áður en Syriza og Tsipras var kjörinn fyrst til valda í janúar hafði þessi vinstri­flokkur lofað því að ráðast ekki í miklar aðhalds­aðgerðir og því var samvinna með lándrottnum í sumar nokkur stefnu­breyting.

Verkefni Tsipras í embætti forsætis­ráðherra eru enn ærin. Hann þarf að koma að miklum aðhalds­aðgerðum í rekstri gríska ríkisins og taka á flóttamanna­vandanum. Grikkland er enda eitt þeirra landamæra­landa Evrópu­sambandsins (ESB) sem flótta­menn frá Sýrlandi kjósa að fara í gegnum til Evrópu.

Í næsta mánuði verður gerð fyrsta úttekt á 86 milljarða evra lána­fyrir­greiðslu­áætlun ESB í Grikk­landi svo Tsipras þarf að hafa hraðar hendur við að endur­fjármagna banka­kerfi landsins og koma á jafnvægi í hagkerfinu.

Eftir embættis­tökuna í gær talaði Tsipras fyrst um flóttamanna­vandann, þann mesta í Grikk­landi síðan í stríðinu á Balkans­kaga á tíunda áratugnum. Grikkir hafa kvartað undan reglu­verki ESB, sem skyldar aðildar­lönd sín til að skrá flótta­menn í þeim löndum sem þeir koma fyrst til. Grikkland hefur ekki undan því að skrá fólkið og hefur óskað eftir aðstoð annarra aðildar­ríkja ESB.

Tsipras verður fulltrúi Grikk­lands á neyðar­fundi Evrópu­leiðtoga á morgun þar sem ræða á flóttamanna­vandann. Auk Grikk­lands hafa Ítalir og Ungverjar óskað eftir hjálp við að koma skjóli yfir alla 160.000 flótta­mennina sem hafa komið til Evrópu. Djúpur ágrein­ingur er um áætlanir í þessum efnum og skilur austur og vestur jafnan andstæð sjónarmið að. Í Austur-Evrópu er minni áhugi á því að bjóða flótta­fólk velkomið en í Vestur-Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár