Vinir Stiegs Larsson segja meðferðina á verkum hans „grafarrán“

Tveir æskuvinir sænska spennu­sagna­höf­und­ar­inns ósáttir við að annar höfundur skrifi fjórðu bókina í Millenium-þríleiknum. Faðir og bróðir Stiegs eiga réttinn að höfundar­verki hans en ekki sambýlis­kona hans til 32 ára. Bókin kemur út samtímis í nokkrum löndum í lok mánaðarins.

Metið á tæpa sex milljarða króna
Metið á tæpa sex millj­arða króna Höf­und­ar­verk Stieg Larssons er metið á um 50 millj­ónir doll­ara, nærri sex millj­arða króna, og halda faðir hans og bróðir utan um það. Þeirra vilji var að gefa út fjórðu bók­ina í Mil­lenium-ser­í­unni. Mynd: Britt-Marie Trensmar

Tveir af æskuvinum sænska rithöfundarins heitna Stiegs Larsson, höfundar Millenium-þríleiksins sem vinsælar bíómyndir voru gerðar eftir, eru allt annað en sáttir við þá ákvörðun að gefa út fjórðu bókina sem skrifuð er af öðrum höfundi, David Lagercrantz.  Kalla þeir meðferðina á verkum hans „grafarrán“ og „sirkus“. Þetta skrifa vinir Larssons, Svante Brandén og Anders Lindblom í grein í Dagens Nyheter í dag. Greinin er skrifuð vegna þess að fjórða bókin í seríunni kemur út í lok mánaðarins og er mikil eftir­vænting eftir henni í Svíþjóð og víðar en hún verður gefin út samtímis í nokkrum löndum. „Enginn annar en Stieg getur skrifað fram­haldið á skáldskapar­heimi hans. Látið höfundar­verk Steigs hvíla í friði sem og höfuð­persónurnar í bókum hans,“ segir í greininni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár