Ráðherra ritstýrði vefriti sem hæddist að Ástráði vegna stjórnmálaskoðana hans

Ástráður Har­alds­son hæsta­rétt­ar­lög­maður var met­inn í hópi hæf­ustu umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti við Lands­rétt en hlaut ekki náð fyrir augum Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra. Hún sat í rit­stjórn Vef­þjóð­vilj­ans þegar vefritið hædd­ist að Ástráði og kall­aði hann „funda­skelfi Æsku­lýðs­fylk­ing­ar­innar“ árið 2001. 

Ráðherra ritstýrði vefriti sem hæddist að Ástráði vegna stjórnmálaskoðana hans

Sigríður Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra, var í rit­stjórn Vef­þjóð­vilj­ans þegar vef­mið­ill­inn hædd­ist að Ástráði Har­alds­syni lög­fræð­ingi og upp­nefndi hann vegna stjórn­mála­skoð­ana. Hún ákvað að gera ekki til­lögu um hann sem dóm­ara við Lands­rétt þrátt fyrir að dóm­nefnd hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hann væri einn af hæf­ustu umsækj­end­unum.

Tillaga Sigríðar Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra, um skipan fimmtán dóm­ara við Lands­rétt var sam­þykkt á Alþingi með 31 atkvæði gegn 22 atkvæðum á fimmtu­dag. Fjórum umækj­endum, sem dóm­nefnd hafði metið í hópi fimmtán hæf­ustu umsækj­enda var skipt út fyrir aðra fjóra umsækj­endur sem allir gegna stöðu hér­aðs­dóm­ara. Sigríður rök­studdi þá breyt­ingu, í fylgi­bréfi með til­lögu sinni, á þeim grund­velli að nefndin hefði ekki gefið dóm­ara­reynslu nægi­legt vægi í hæfn­is­mati sínu. Einn þeirra er Sigríður lagð­ist gegn því að veita stöðu dóm­ara við Lands­rétt er Ástráður Har­alds­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður sem hafn­aði í fjór­t­anda sæti í hæfn­is­mati dóm­nefnd­ar­innar. 

Sigríður, sem tók við starfi dóms­mála­ráð­herra fyrr á árinu, hefur látið mikið að sér kveða í þjóð­mála­um­ræð­unni um ára­bil, meðal ann­ars sem pistla­höf­undur og sem einn af rit­stjórum vefrits­ins Vef­þjóð­vilj­ans á Andríki.is. Á vef Alþingis kemur fram að Sigríður sat í rit­stjórn Vef­þjóð­vilj­ans á árunum 1995 til 2006 og var seta hennar í rit­stjórn­inni sér­stak­lega til­greind á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þegar hún tók við ráð­herra­emb­ætti. Þegar Sigríður bauð sig fram í próf­kjörum hjá Sjálf­stæð­is­flokknum árið 2006 birt­ist pist­ill á Andríki þar sem fram­boði hennar voru gerð skil „til upp­lýs­ingar þeim sem kynni að þykja óhætt að inn í þing­um­ræður bær­ust þau meg­in­sjón­ar­mið sem kynnt hafa verið á þessum vett­vangi und­an­farin ár“. Þannig virð­ist stjórn­mála­fer­ill Sigríðar sam­tvinn­aður þeim við­horfum sem viðruð hafa verið á vefnum Andríki. 

Ástráður bendlaður við Sovétríkin

Í grein sem Andríki birti árið 2001 er hæðst að Ástráði Har­alds­syni vegna skoð­ana hans á nekt­ar­dans­stöðum. Greinin birt­ist í kjöl­far skrifa Ástráðs í Morg­un­blaðið þar sem hann rök­studdi þá skoðun sína að banna ætti nekt­ar­staði. „Mikið óhapp er að borg­ar­búar skyldu ekki hafa borið gæfu til að veita Ástráði braut­ar­gengi í kosn­ingum þegar hann loks lét til leið­ast og sté niður til pöp­uls­ins að veita honum þjón­ustu. En Ástráður hefur engu gleymt og nú fær almenn­ingur enn tæki­færi til að njóta leið­sagnar meist­ar­ans,“ segir í grein Vef­þjóð­vilj­ans.

„En Ástráður hefur engu gleymt og nú 
fær almenn­ingur enn tæki­færi til að 
njóta leið­sagnar meist­ar­ans“

„Ekki þarf annað til en Ástráður Har­alds­son, fyrrum funda­skelfir Æsku­lýðs­fylk­ing­ar­innar, sjái í hendi sér að til­tek­inn verkn­aður „skili engu jákvæðu fram­lagi til þjóð­fé­lags­ins“ og þá verður verkn­að­ur­inn bann­aður. Í fram­haldi af því verður hér hið mesta sælu­ríki og allir him­in­lif­andi. Rétt eins og í Sovét-Rúss­landi þar sem sömu hug­myndir félaga Ástráðs reynd­ust svo vel.“

Ástráður hefur gegnt trún­að­ar­störfum fyrir Vinstri­hreyf­ing­una grænt fram­boð og Alþýðu­banda­lagið. Hann sat í Háskóla­ráði á níunda ára­tugnum fyrir Félag vinstri manna og var einn af stofn­endum Röskvu, sam­taka félags­hyggju­fólks við HÍ. Hann var kall­aður „kommi“ í umfjöllun Við­skipta­blaðs­ins árið 2012. Þá hefur verið bent á að annar umsækj­andi, sem ekki hlaut náð fyrir augum ráð­herra þrátt fyrir að lenda í 7. sæti í hæfn­is­mati dóm­nefndar, er fyrr­ver­andi vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár