Mynd: Heiða Helgadóttir

Syndaaflausn Kára Stefánssonar

„Ég er hvat­vís óþverri,“ segir Kári Stef­áns­son, en bar­átta hans fyrir hjálp til þeirra veik­ustu bendir til ann­ars. Kári segir frá sög­unni sem hann hefur að segja heim­inum. Hann ræðir um genetískar til­hneig­ingar, heil­ann sem er hann, hjarta hans sem hneig­ist erfða­fræði­lega til þess að van­still­ast og rang­indin sem fel­ast í því að hann er auð­maður á meðan systir hans dregur varla fram lífið af kenn­ara­launum. Hann segir líka frá stærstu eft­ir­sjánni, sem leiðir af mestu sigrunum.

„Það er svona vatn í kringum húsið, þar sem ég get drekkt blaða­mönnum,“ segir Kári þegar við mælum okkur mót í höf­uð­stöðvum Íslenskrar erfða­grein­ingar. Ég seg­ist mæta í vatns­heldu og held til fundar við hann. Nokkrum mán­uðum áður hafði Kári hringt í mig, ósáttur við umfjöllun um skil­yrði sem sett voru við gjöf á jáeindaskanna til Land­spít­al­ans, kallað mig  „strákaula“ og skellt á.

Hús Íslenskrar erfða­grein­ingar í Vatns­mýr­inni er kast­ali. Það fer ekki á milli mála að Kári er þar kóng­ur­inn. Í bið­stof­unni við skrif­stofu Kára er boðið upp á pip­ar­kökur. Spurð hvers vegna hefð­bundnar jóla­kökur séu á boðstólum um mitt sumar segir starfs­maður Íslenskrar erfða­grein­ingar: „Kári borðar pip­ar­kökur allt árið. Þær urðu vin­sælar ein jólin og síðan hefur hann borðað þær.“

Kári er tauga­læknir og tauga­meina­fræð­ingur að mennt. Hann hefur gaman af því að taka fólk á taugum, stuða það og greina við­brögðin. Þegar ég spyr hann út í þá til­hneig­ingu svarar hann með stuði: „Hvernig dettur þér í hug að koma með svona kenn­ingar að ég hafi gaman af því? Ég bara geri það með því að vera sá sem ég er.“

Inni á skrif­stofu hans er vítt útsýni yfir Hjartað í Vatns­mýr­inni. Þar er líka smá­sjá. Sem meina­fræð­ingur starf­aði Kári á yngri árum við að greina mein í frystum og lit­uðum sneiðum af heila í gegnum smá­sjá. „Það er dramat­ískt að lesa frosnar sneiðar,“ segir Kári. „vegna þess að þú ert raun­veru­lega ekk­ert annað en heil­inn þinn. Ef ég tæki þig og ég myndi skræla afgang­inn af lík­am­anum frá heil­anum og halda heil­anum lif­andi í fötu þá væri heil­inn þú. Ef ég myndi halda afgangnum af lík­am­anum lif­andi ann­ars staðar  þá væri það eitt­hvað allt annað en þú.“

En Kári hefur snúið sér í auknum mæli að því að greina mein í heila og tauga­kerfi íslensks sam­fé­lags. Viðmið Kára fyrir heil­brigt sam­fé­lag er hvernig það bregst við veik­indum fólks. Hann fann það á sjálfum sér þegar hann leit­aði sér lækn­inga vegna hjart­sláttar­ó­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár