Mynd: Kristinn Magnússon

Síðustu dagar loftárása

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son skaut á RÚV og flúði frétta­menn undir lok fer­ils síns sem for­sæt­is­ráð­herra.

11. mars - Viðtalið

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, byrj­aði föstu­dag­inn 11. mars á við­tali í útvarps­þætt­inum Bítinu á Bylgj­unni þar sem Sig­mundur Davíð ræddi fyrst og fremst um mál­efni trygg­ing­ar­fé­lag­anna, sem þá fóru hátt í sam­fé­lag­inu. Hann var léttur í bragði og brá á leik með þátta­stjórn­endum, grun­laus um það sem dag­ur­inn ætti eftir að bera í skaut með sér.

Síðar sama dag tók Sven Bergman, frétta­maður sænska frétta­skýr­inga­þátt­ar­ins Uppdrag Granskning, við­tal við Sigmund Davíð í ráð­herra­bú­staðnum. Eins og heims­frægt er orðið var Sig­mundur þar í fyrsta skipti spurður um félagið Wintris. Hann brást illa við, neit­aði að svara spurn­ingum Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­sonar og gekk út úr við­tal­inu. 

Stuttu síðar fór Sig­mundur Davíð í við­tal hjá Stöð 2 vegna hug­mynda hans um að nýr Land­spít­ali yrði reistur á Víf­ils­stöðum í Garðabæ, en rétt fyrir klukkan tvö hafði hann birt færslu á blogg­síðu um nýjan spít­ala á Víf­ils­stöðum. Una Sig­hvats­dóttir, frétta­kona á Stöð 2, sagði frá upp­lifun sinni á Facebook-síðu sinni eftir að frétta­skýr­inga­þáttur Kast­ljóss og Reykja­vík Media var sýndur. „Síðdegis þann 11. mars hitti ég Sigmund Davíð í ráð­herra­bú­staðnum vegna við­tals um stað­setn­ingu nýs land­spít­ala vid Víf­ils­staði (man ein­hver eftir því máli núna?) Það lá ekki vel á for­sæt­is­ráð­herra þennan dag og við töku­mað­ur­inn ræddum sér­stak­lega eftir á hvað hann var áber­andi óró­legur. Ég skil það betur núna, þegar komið er í ljós að stuttu áður sama dag hafði hann gengið út úr við­tali við Sven Bergman í þessu sama her­bergi.“

15. mars - Facebook-færsla Önnu Sigurlaugar

Í kvöld­fréttum RÚV var fjallað um vax­andi ágrein­ing milli stjórn­ar­flokk­anna í fjöl­mörgum málum og voru þar sér­stak­lega nefnd hús­næð­is­málin, afnám verð­trygg­ingar, gjald­taka á ferða­manna­stöðum, sala á Lands­bank­anum, búvöru­samn­ing­ur­inn og upp­bygg­ing Land­spít­ala við Hring­braut.    

Almenn­ingur heyrði síðan í fyrsta skipti af félag­inu Wintris í Facebook-færslu Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­in­konu Sig­mundar Davíðs, að kvöldi þriðju­dags­ins 15. mars. Hvergi var minnst á við­talið sem tekið var við Sigmund fjórum dögum áður og því til­efni færsl­unnar óljóst. Í færsl­unni sagð­ist Anna Sig­ur­laug eiga erlent félag 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Wintris-málið

Leyndu tilvist Wintris og greiddu ekki skatta í samræmi við lög
FréttirWintris-málið

Leyndu til­vist Wintris og greiddu ekki skatta í sam­ræmi við lög

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og eig­in­kona hans við­ur­kenndu í bréfi til rík­is­skatt­stjóra að hugs­an­lega hefðu þau ekki farið að reglum með því að skila ekki CFC-skýrslum. Þurftu að láta leið­rétta skatt­fram­töl mörg ár aftur í tím­ann. Útsvar, auð­legð­ar­skattur og tekju­skattur var end­ur­á­kvarð­aður.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár