Nýr forsetaframbjóðandi: Bæring Ólafsson býður sig fram

Bæring Ólafsson, fyrr­ver­andi for­stjóri og fram­kvæmda­stjóri Coca Cola International, býður sig fram til emb­ættis for­seta Íslands.

Nýr forsetaframbjóðandi: Bæring Ólafsson býður sig fram

Bæring Ólafsson, fyrr­ver­andi for­stjóri og fram­kvæmda­stjóri Coca Cola International, hefur ákveðið að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Þetta til­kynnti hann á Facebook-síðu sinni fyrir skemmstu. 

Eftirfarandi texta birti Bæring sjálfur með tilkynningunni:

„Bæring hefur unnið sig til æðstu met­orða síð­ast­liðin 25 ár í starfi á Íslandi, í Banda­ríkj­unum, Evrópu og Asíu. Bæring hefur víð­tæka reynslu á stórum mark­aðs­svæðum og verið ábyrgur fyrir fyr­ir­tækjum með allt að 17 þús­und manns í vinnu og með árlega veltu frá 150 til 450 millj­örðum króna.

Bæring er fæddur á Pat­reks­firði 22. nóv­em­ber 1955. Á yngri árum starf­aði hann m.a. við sjó­mennsku, í bygg­inga­iðn­aði og sölu­mennsku. Árið 1984 flutt­ist hann til Oregon og stund­aði þar nám í við­skipta­fræði við Uni­versity of Oregon til 1987. Bæring er giftur Rose Olafsson bæj­ar­stjóra og á sex börn og sex barna­börn.

Hæfur, traustur og óháður

Bæring telur að reynsla sín, þekk­ing og kraftur, jafnt af erlendum og inn­lendum vett­vangi, muni koma að góðu gagni fyrir þjóð­ina. Honum finnst þjóðin þurfa á að halda sterkum og reyndum leið­toga sem er heið­ar­legur, hæfur, traustur og óháður. Hann mun kapp­kosta að hlusta ætíð á þjóð­ina og hafa hags­muni hennar að leið­ar­ljósi.

Bæring telur að for­seti Íslands eigi að vera óháður stjórn­mála­öflum og hags­muna­sam­tökum svo að hann geti tekið sjálf­stæðar ákvarð­anir sem varða hags­muni þjóð­ar­innar. Sem for­seti Íslands mun Bæring beita sér fyrir að styðja aukið lýð­ræði, hvetja ungt fólk til auk­innar mennt­unar og nýsköp­unar, stuðla að öfl­ugu menn­ing­ar­lífi, styðja og styrkja heil­brigð­is­stétt­ina og mál­efni aldr­aðra og öryrkja. Einnig mun hann leggja áherslu á sjálf­bærni í nýt­ingu auð­linda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2016

Saga af tveimur forsetum: Helgi fokking Björns. Og hnykkurinn
Karl Th. Birgisson
Skoðun

Karl Th. Birgisson

Saga af tveimur for­setum: Helgi fokk­ing Björns. Og hnykk­ur­inn

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur flutt um 35 ræður og erindi frá því hann varð for­seti. Hann hefur notað þau í að kveða niður þjóð­rembu og forð­að­ist meðal ann­ars upp­hafn­ingu þjóð­kirkj­unnar. Hann sker sig frá Ólafi Ragnari Gríms­syni, sem í kosn­inga­bar­áttu sinni 1996 hafði sem ein­kenn­islag „Sjá dagar koma“ eftir Davíð Stef­áns­son, þar sem alda­löngum þrautum Íslend­inga er lýst.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár