Mynd: Pressphotos

Leitin að dánarorsök Samfylkingarinnar

Breið­fylk­ing jafn­að­ar­manna er orðin þriggja manna þing­flokkur í alvar­legri til­vist­ar­kreppu. Hvernig fór annar turn íslenskra stjórn­mála að því að sökkva niður í smá­flokk?

Logi Ein­ars­son, nýr for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, situr í tröpp­unum í ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu og bíður þess að vera kall­aður á fund Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem fengið hefur umboð for­seta Íslands til að mynda rík­is­stjórn. Logi fer á fund Bjarna þótt flokk­ur­inn Sam­fylk­ingin, breið­fylk­ing jafn­að­ar­manna, hafi aðeins fengið þrjá þing­menn og lýst hefði verið yfir að hún færi ekki í rík­is­stjórn. Hann hafði þurft að bíða og var nú kom­inn í annað sinn.

Þegar í ljós kom að fundur Bjarna við for­menn Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar hefði dreg­ist á lang­inn ákvað þessi 52 ára gamli arki­tekt frá Akureyri að fá sér göngutúr í kringum Tjörnina til að drepa tím­ann. Þegar hann sneri aftur úr göngut­úrnum, um hálf­tíma síðar, stóð fundur Bjarna með Óttari Proppé og Benedikt Jóhann­essyni enn yfir og Logi fékk sér sæti í tröpp­unum. Þar bíður hann á meðan ljós­mynd­arar og blaða­menn allra helstu miðla á Íslandi fylgj­ast …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár